Fór í sérútbúnum hjólastól að gosinu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. maí 2021 13:01 Dagur Steinn Elfu Ómarsson var sáttur með að komast alla leið að eldfjallinu. Dagur Steinn Dagur Steinn Elfu Ómarsson er einn þeirra fjölmörgu Íslendinga sem lagt hefur leið sína að eldgosinu við Fagradalsfjall síðustu vikur. Hann notar sérútbúinn hjólastól og fékk því lánaðan sérstakan stól fyrir þessa skemmtilegu ferð.
Öryggismiðstöðin á tvo sérútbúna stóla sem komast yfir erfitt landslag með fatlað fólk og þá sem geta einhverja hluta vegna ekki komist á tveimur jafnfljótum. Stólarnir voru meðal annars notaðir til að koma 24 einstaklingum upp á Esju fyrir fáeinum árum þegar Öryggismiðstöðin fagnaði tuttugu ára afmæli. Dagur Steinn fór í þá prufuferð. Markmiðinu náð Það hefur verið mikill áhugi hjá fötluðu fólki að komast upp að gosi og margar fyrirspurnir hafa borist Öryggismiðstöðinni um að fá stólana að láni. „Leiðin var skoðuð fyrr í vor og ekki talin með góðu móti fær. Á dögunum voru svo gerðar verulegar endurbætur á svæðinu, stígar lagfærðir og gerðir aðgengilegri. Það var því ákveðið að fara í prufuferð upp að gosi og sjá hvort leiðin sé að opnast fyrir fólk sem notar hjólastól,“ segir Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar. Dagur Steinn fór upp að gosinu ásamt sjálfboðaliðum, fjölskyldu og vinum. Ferðin gekk vonum framar þrátt fyrir ekta íslenskar aðstæður, sól og haglél í bland. Hópurinn var um þrjár klukkustundir að komast upp að gosi og til baka. Dagur Steinn segir að það hafi verið mikil stemming að ganga saman þarna upp og hópurinn fékk mikla hvatningu frá öðru göngufólki. „Frábær dagur og markmiðinu náð,“ segir Dagur Steinn um ævintýrið. Hópurinn kominn á leiðarenda.Dagur Steinn „Það er ljóst að breytingar og lagfæringar á stígum eru mjög til bóta fyrir þá sem eiga erfiðara með að komast upp að gosi. Vonandi verður unnið áfram að betrumbótum og meiri möl borin í stígana en þeir eru nokkuð leirkenndir á köflum sem gerir þá sleipa í vætusömu veðri. Prufuferðin gefur alla veganna mjög góð fyrirheit um að hægt verði að nýta þessa öflugu stóla í sumar til að koma sem flestum sem vilja njóta gossins og náttúrunnar þangað upp,“ segir Ómar Örn. Dagur Steinn deildi nokkrum vel völdum myndum úr ferðinni á Facebook.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Tengdar fréttir Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. 13. maí 2021 22:44 Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13. maí 2021 16:00 Katrín fór loks að gosinu 51 degi eftir að það hófst Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fór loksins að skoða eldgosið í Fagradalsfjalli í gær, 51 degi eftir að það hófst 19. mars. 10. maí 2021 15:53 Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira
Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. 13. maí 2021 22:44
Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13. maí 2021 16:00
Katrín fór loks að gosinu 51 degi eftir að það hófst Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fór loksins að skoða eldgosið í Fagradalsfjalli í gær, 51 degi eftir að það hófst 19. mars. 10. maí 2021 15:53