Jafntefli Atalanta þýðir að Inter Milan er Ítalíumeistari Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. maí 2021 15:10 Úr leik dagsins. EPA-EFE/SERENA CAMPANINI Einokun Juventus er loks lokið en Inter Milan er Ítalíumeistari. Það var endanlega staðfest eftir dramatískt 1-1 jafntefli Atalanta gegn Sassuolo í dag. Leikur dagsins var hin mesta skemmtun en Pierluigi Gollini fékk rautt spjald í liði Atalanta á 23. mínútu. Gestirnir komust samt sem áður yfir á 32. mínútu þökk sé marki Robin Gosens. Atalanta því manni færri en marki yfir er flautað var til loka fyrri hálfleiks. Domenico Berardi jafnaði metin fyrir heimamenn úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og staðan orðin 1-1. Sassuolo skoraði svo mark sem var dæmt af eftir að hafa verið skoðað af myndbandsdómara leiksins og á 75. mínútu fékk Marlon sitt annað gula spjald og þar með rautt. Atalanta fékk í kjölfarið vítaspyrnu sem hefði haldið lífi í toppbaráttunni. Luis Muriel brenndi af og fór það svo að leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Það þýðir að Inter Milan er orðið meistari þó enn séu fjórar umferðir eftir af deildinni. Önnur úrslit dagsins voru þau að Lazio vann 4-3 sigur á Genoa. Bologna og Fiorentina gerðu 3-3 jafntefli og þá gerði Napoli 1-1 jafntefli við Cagliari. Inter fans celebrate the club winning its first Scudetto in 11 years pic.twitter.com/Tn8Ixn4O4n— B/R Football (@brfootball) May 2, 2021
Leikur dagsins var hin mesta skemmtun en Pierluigi Gollini fékk rautt spjald í liði Atalanta á 23. mínútu. Gestirnir komust samt sem áður yfir á 32. mínútu þökk sé marki Robin Gosens. Atalanta því manni færri en marki yfir er flautað var til loka fyrri hálfleiks. Domenico Berardi jafnaði metin fyrir heimamenn úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og staðan orðin 1-1. Sassuolo skoraði svo mark sem var dæmt af eftir að hafa verið skoðað af myndbandsdómara leiksins og á 75. mínútu fékk Marlon sitt annað gula spjald og þar með rautt. Atalanta fékk í kjölfarið vítaspyrnu sem hefði haldið lífi í toppbaráttunni. Luis Muriel brenndi af og fór það svo að leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Það þýðir að Inter Milan er orðið meistari þó enn séu fjórar umferðir eftir af deildinni. Önnur úrslit dagsins voru þau að Lazio vann 4-3 sigur á Genoa. Bologna og Fiorentina gerðu 3-3 jafntefli og þá gerði Napoli 1-1 jafntefli við Cagliari. Inter fans celebrate the club winning its first Scudetto in 11 years pic.twitter.com/Tn8Ixn4O4n— B/R Football (@brfootball) May 2, 2021 Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Njarðvík - Stjarnan | Komast meistararnir í gang? Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Sex handtökur í mótmælum fyrir leik í Evrópudeildinni Emilía skoraði annan leikinn í röð Logi á toppnum en Hákon á bekknum Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Sjá meira