Napoli rúllaði yfir Lazio meðan Roma og Atalanta skildu jöfn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. apríl 2021 20:46 Dries Mertens og Lorenzo Insigne fagna einu af fimm mörkum Napoli í kvöld. EPA-EFE/CIRO FUSCO Tveir stórleikir fóru fram í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Napoli rúllaði yfir Lazio, 5-2 á meðan Roma og Atalanta gerðu 1-1 jafntefli.
Það tók Napoli aðeins tólf mínútur að komast í 2-0. Lorenzo Insigne og Matteo Politano þar að verki. Þannig var staðan þangað til í síðari hálfleik. Þá bætti Insigne við þriðja marki heimamanna og Dries Mertens bætti því fjórða við á 65. mínútu. Fimm mínútum síðar minnkaði Ciro Immobile muninn fyrir gestina. Sergej Milinkovic-Savic bætti við öðru marki Lazio á 74. mínútu og staðan því orðin 4-2. Victor Osimhen stöðvaði svo endurkomu gestanna þegar hann skoraði fimmta mark heimamanna, staðan orðin 5-2 og reyndust það lokatölur. Hart var barist í leiknum en alls fóru átta gul spjöld á loft. Í leik Roma og Atalanta fór einnig fjöldinn allur af spjöldum á loft. Ruslan Malinovsky kom gestunum í Atalanta yfir á 26. mínútu. Staðan 1-0 í hálfleik. Robin Gosens fékk tvö gul spjöld í síðari hálfleik og þar með rautt. Skömmu eftir það síðara jafnaði Bryan Cristante metin fyrir Roma. Staðan 1-1 og reyndust það lokatölur. Heimamenn misstu einnig mann af velli en í uppbótartíma fékk brasilíski varnarmaðurinn Ibanez tvö gul spjöld og þar með rautt. Atalanta er því komið upp fyrir Juventus í 3. sæti deildarinnar með 65 stig. Napoli er í 5. sætinu með 63 stig, Lazio í 6. sæti með 58 stig og Roma í 7. sæti með 55 stig.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Í bann fyrir að kasta flösku í barn Körfubolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Sjá meira