Síbreytileiki sóttvarnaraðgerða Gunnar Ingi Björnsson skrifar 20. apríl 2021 15:31 Það er óhætt að segja að Covid-19 hafi skapað nýjan raunveruleika fyrir okkur öll. Þjóðríki standa frammi fyrir erfiðum úrlausnarefnum. Hvernig á að haga málum þannig hægt sé að viðhalda þeirri samfélagsmynd sem mótast hefur í hverju landi? Læknisfræðin mun efalaust ná stjórn á Covid-19 en hversu langan tíma mun það taka? Er hinn nýi raunveruleiki sá að gera þarf ráð fyrir því að sambærilegir faraldrar spretti upp aftur og jafnvel aftur? Ísland er þar engin undantekning og stendur frammi fyrir sömu spurningum. Bráðlega verða komir 18 mánuðir frá því að fyrst heyrðist af nýjum vírus og varla hafa það verið margir Íslendingar sem rennt hefur í grun hvaða afleiðingar þær fréttir myndu hafa. Fyrstu 6 mánuði faraldursins einkenndust af mikill samstöðu. Síðustu 12 mánuðir hafa hins vegar litast af aukinni sóttvarnarþreytu og fleiri nýyrðum. Endurteknar tilraunir til þess að aflétta kvöðum og viðhalda því samfélagi sem við best þekkjum hafa gengið erfiðlega af ýmsum ástæðum. Ábyrgð stjórnvalda Í dag ríkir ekki samfélagsleg sátt um hvaða leiðir skuli fara í þeirri stöðu sem er komin upp. Mismunandi sjónarmið heyrast og eins og svo oft þegar staðið er andspænis vondri stöðu virðist sem ekkert sé alveg rétt og ekkert sé alveg rangt. En þá reynir á þá aðila sem með völdin fara. Á þeim stundum er mikilvægt að reyna ekki að þóknast öllum heldur velja þær leiðir skila sem mestum ávinningi og sem mest sátt ríkir um. Köllum það skýra málamiðlun. Nú er svo komið að nauðsynlegt er að gera kröfu á stjórnvöld að marka leið og stefnu og setja fram slíka skýra málamiðlun. Reynslu síðustu 18 mánaða þarf að nýta til þess að ákveða hvernig við ætlum að standa að málum. Ekki er lengur hægt að leggja á þjóðina að taka við óskýrum og síbreytilegum minnisblöðum og reglugerðum. Setja þarf skýrar reglur og framfylgja þeim svo. Reglurnar þurfa vissulega að geta breyst eftir því hvernig staða mála breytist. En þær breytingar verða að vera fyrirsjáanlegar og skapa hinum almenna borgara sem best lífskilyrði á viðsjárverðum tímum. Skýrar línur og fyrirsjáanleiki Hvað á ég við? Jú, við þurfum sem dæmi að ákveða hvernig haga beri opnun landamæra þegar sambærilegur alheimsfaraldur ríkir. Við þurfum að ákveða hvort við stefnum að veirulausu landi eða hvort við viljum „fletja kúfinn“. Við þurfum að skapa fyrirtækjunum í landinu rekstrarskilyrði sem þau geta skilið og skipulagt eftir. Við þurfum að hætta að flokka starfsemi niður eftir því hvort afþreyingin er leikrit eða íþróttir, inni eða úti. Við getum ekki haft veitingastaði sem selja bjór og hamborgara opna en þá sem selja bara bjór lokaða. Við verðum að setja fram reglur sem eru eins almennar og mögulegt er og við verðum að geta fært sannfærandi rök fyrir þeim. Ég get alveg haft mína skoðun á því hvernig reglur sem þessar eru. Þær geta farið í taugarnar á mér og valdið mér ama. Ég verð að taka því. En ekkert veldur mér eins miklum ama og síbreytilegar reglur. Slíkur ami er að mínu mati einnig fullkomlega óþarfur. Síðasta sumar lofuðu sóttvarnaryfirvöld litakerfi fyrir Ísland þar sem mismunandi hættustig kallaði á mismunandi aðgerðir. Hvað varð um þetta litakerfi og hvað varð um þennan fyrirsjáanleika í þeim aðgerðum sem gripið er til hverju sinni? Er það yfirvöldum um megn að setja niður eitt kerfi með fyrirsjáanlegum aðgerðum og reglum og viðhalda því kerfi eins og þörf krefur? Hækkandi refsing er samfélagsleg krafa Eins er hægt að spyrja sig ýmissa spurninga um hvernig stjórnvöld ætla að meðhöndla brot á sóttvarnarlögum. Ef ég brýt umferðarlög og keyri of hratt eða fer yfir á rauðu ljósi má ég fastlega búast við sekt. Eðlilega. Þetta vita allir, og gildir um alla, hvort sem þeir eru bornir og barnfæddir í Njarðvík, Gdańsk eða Seattle. Engu skiptir hvort þeir eru ferðamenn eða með fasta búestu á Íslandi og jafnvel ríkisborgarar. Ef svo illa fer fyrir einhverjum að valda öðrum miska, eða jafnvel dauða, með slíku broti má búast við því að ákæra verði gefinn út á hendur viðkomandi og hann hljóti dóm fyrir. Ef brot eru ítrekuð eða alvarleg hefur það þau áhrif að dómurinn þyngist í takt við alvarleika brotanna. Það er mér ómögulegt að sjá muninn á því að brjóta lög og reglur um sóttkví og einangrun eða lög og reglur um akstur. Ég get ekki séð muninn á því að forðast að svara símtölum frá yfirvöldum varðandi sóttkví og einangrun eða neita að stöðva för sína þegar yfirvöld setja á ljós og sírenur og fyrirskipa stöðvun vegna umferðarlagabrota. Brot á reglum sem þessu tel ég að eigi að meðhöndla með sambærilegum hætti og raunar geri ég kröfu sem almennur borgari að slíkt sé gert. Mér er alveg sama hvort viðkomandi er með íslenskan víkingabeinmerg eða er nýlega fluttur til landsins. Það einfaldlega skiptir engu máli. Af einhverjum ástæðum er í dag horft mildari augum á brot á sóttvarnarlögum en öðrum brotum. Varla er andrúmsloftið rétt til þess að gera það áfram og nauðsynlegt að meðhöndla slík brot af meiri alvöru og festu gert hefur verið fram til þessa. Skipuleggjum til framtíðar Covid-19 hefur haft í för með sér gríðarlega skerðingu á lífsgæðum almennings um heim allan og því miður hefur verið þörf á því. Um það er ekki deilt og það á ekkert síður við Ísland en önnur lönd. Vernd þeirra sem viðkvæmir eru tekur forgang og ég eins og aðrar manneskjur verð og mun beygja mig undir það. En eitt þarf ekki að útiloka annað og ég skora núna á að yfirvöld að ná meira samræmi og setja fram skýrari reglur um sóttvarnir og samfélagsleg viðmið. Ekki síst þar sem leiða má líkum að því að Covid-19 verði ekki síðasti alheimsfaraldurinn sem gengur yfir heiminn og mikilvægt að finna leiðir til að viðhalda samfélaginu okkar eins vel og mögulega er hægt að gera við slíkar aðstæður. Höfundur er almennur borgari. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ísland, öryggi og almennur viðbúnaður Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Hugleiðing um jól, fæðingu Krists og inngilding á Íslandi Nicole Leigh Mosty skrifar Skoðun Betri en við höldum Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Setjum við Ísland í fyrsta sæti? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Treystir Viðreisn þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Allt fyrir ekkert – eða ekkert fyrir allt? Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar
Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun