Er Covid-ótti aðeins fyrir útvalda? Helga Birgisdóttir skrifar 8. febrúar 2021 09:02 Ekki það að ég mæli með ótta, en merkilegt nokk, þá er metist um hann og vinsældir hans vaxa hratt. „Iss piss, með ÞINN ótta; hann er bara rugl og sýnir að þér er sama um alla aðra.“ Jebb, þú ógnar fjöldanum; ef þú deilir ekki rétta ríkisóttanum. Svo þú þegir - skiljanlega. Vilt ekki að aðrir haldi að þú viljir drepa einhvern. Það virðast tvær reglur vera í gildi: 1. Það skal óttast kórónaveiru og fólk almennt. 2. Það skal ekki óttast: bóluefni, grímur, einangrun, bann við samveru ástvina, atvinnumissi, heilsuleysi og dauða af afleiðingum sóttvarnarreglna, efnahagslegt hrun, að detta úr skóla, yfirvöld. Þakka má fyrir að manni er leyft að vera með sjálfum sér. En erum við kannski búin að missa tengingu við okkar eigið SJÁLF? Það eina sem vert er að óttast, ef svo má segja, er óttinn sjálfur. Flest óttumst við eitthvað, og það versta, fyrir flesta, er óttinn við þjáningu og dauða. Við höfum þó mismunandi skilgreiningar á hvað skapar slíkt ástand. Sumum finnst einangrun verri en dauðinn, á meðan aðrir loka sig af í heilt ár, til að deyja nú örugglega ekki. Sumir eru hræddir um að deyja af bólusetningu, á meðan aðrir eru hræddir um að deyja ef þeir fá hana ekki. Flest þörfnumst við viðurkenningar annarra og erum jafnvel tilbúin að gera hvað sem er til að vera samþykkt. Við setjum því upp grímu og felum sannleika okkar. Þegar fólk er þvingað og svipt frelsi er hætta á streitu sem hefur áhrif á líf og heilsu. Fólk óttast það sem ógnar þeirra ótta Það er skrítið samfélag sem leyfir ekki fólki að tjá sig. Það er skrítið samfélag sem samþykkir að ráðist sé á þá sem hafa ólíka skoðun. Það kallast meðvirkni og í slíku umhverfii þrífast oft skaðleg leyndarmál. Getur verið að við óttumst dauðann svo mikið, að við fórnum jafnvel lífinu, til að forðast hann? Leggjum okkar ljúfa líf á hillu í geymslunni, þar til það rykfellur, gleymist, og fer að slá í það. Kannski kominn tími á að rýna í hvað gefur lífinu mest gildi. Það er vegna ótta við dauða og skort að stríð eru háð í heiminum og misrétti er beitt. Það er vegna þesslags ótta sem kærleika er sópað undir teppið; hvort sem er á mánudegi eða á jóladegi. Síðasta árið hefur heimurinn orðið súrrealískari en nokkrum óraði fyrir og stríðástand ríkt, þó ekki sé verið að varpa sprengjum. Jafnvel á Íslandinu góða hafa skapast andstæðar fylkingar sem berjast með vopnum útskúfunar, haturs og sleggjudóma. Ekki vegna þess að fólk vilji öðrum illt - heldur vegna þess að fólk trúir að aðrir ógni lífi sínu og sinna ástvina. Óttinn er mataður oní okkur alla daga; með tölulegum upplýsingum og fyrirmælum í fréttum um hvað má, en þó aðallega; hvað má ekki. Allt til að bjarga okkur frá dauðanum. Lítill áhugi fjölmiðla er til að kynna sér aðrar hliðar málanna, og það væri í fínu lagi . . . ef aðrir fengju að kynna sér þær í friði . . . og tjá sig. Einn kassi fyrir alla Af hverju erum við viss um kassinn sem yfirvöld hafa troðið okkur í sé hinn eini rétti? Yfirvöld búa til reglukassa, nú sem oftar, og vei þeim sem vill út úr honum. Blindandi skulum við treysta því að kassinn forði okkur frá þjáningu og dauða. Kassinn er lokaður, þröngur og gluggalaus, og ekkert pláss fyrir vangaveltur sem gætu sprengt lokið af. Hafa yfirvöld, hingað til, alltaf haft mestu viskuna og velvildina almenningi til heilla? Meðvirkni kraumar í hverju horni og ekkert lát virðist á. Hún er alvarlegt heilsufarslegt vandamál og eitt af einkennum hennar er þöggun. Við tölum ekki um neitt sem ruggar bátnum. Fjöldi fólks hefur sagt að það óttist lítt rannsakað bóluefni og vilji það alls ekki. Eins eru margir á báðum áttum. Þessir aðilar þora varla að tjá sig, sérstaklega ef þeir tilheyra heilbrigðisstéttum. Hin fylkingin telur sig í fullum rétti að hrauna yfir viðkomandi með dónaskap og reiði. Fólk er sakað um heimsku og eigingirni - og það sem verra er; að bera ábyrgð á veikindum og dauða annarra. Skömm og sektarkennd eru einkenni meðvirkni, og það er ofbeldi að troða slíku upp á aðra, að ég tali nú ekki um börn. Aldrei fyrr hefur reynt eins mikið á frelsi, mannréttindi og lýðræði. Enginn þarf að vera sammála öðrum, en væri ekki meiri mennska að leyfa fólki að tjá sig án persónulegra árása? Kjarkur kemur frá hjartanu og hann þarf oft til að sýna kærleika í verki. Gott er að hafa slatta af kurteisi með. Lifið heil. Greinarhöfundur er forsprakki Meðmæla með Mannréttindum, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, frumkvöðull SMILER, NLP meðferðar/og markþjálfi og myndlistakona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar