Bayern München vill kaupa Karólínu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2020 13:16 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á óskalista Bayern München. vísir/vilhelm Bayern München á í viðræðum við Breiðablik um kaup á íslensku landsliðskonunni Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.
Í samtali við Fótbolta.net staðfesti Sigurður Hlíðar Rúnarsson, deildarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, að Bayern hefði sett sig í samband við Blika vegna mögulegra kaupa á Karólínu. „Þeir hafa mikinn áhuga á henni og við erum í viðræðum við þá,“ sagði Sigurður við Fótbolta.net. Karólína hefur leikið með Breiðabliki undanfarin þrjú tímabil en hún kom til liðsins frá FH. Hún hefur tvisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með Blikum og einu sinni bikarmeistari. Í sumar lék Karólína alla fimmtán leiki Breiðabliks í Pepsi Max-deildinni og skoraði fjögur mörk. Karólína, sem er nítján ára, kom inn í byrjunarlið Íslands í undankeppni EM 2022 í haust. Hún hefur leikið fjóra A-landsleiki og skorað eitt mark. Bayern situr á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga. Dagný Brynjarsdóttir lék með Bayern 2015 og varð þýskur meistari með liðinu. Í gær var greint frá því að Þýskalandsmeistarar Wolfsburg hefðu fest kaup á Sveindísi Jane Jónsdóttur. Karólína gæti því farið til stórliðs í Þýskalandi líkt og jafnaldra sín og samherji í landsliðinu.
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Mest lesið Lið Orra kvartar undan Porto: Eitruð og sterk lykt í klefanum Handbolti Leik lokið: Fram - FH | FH sendi meistarana í sumarfrí Handbolti Svindl og falsaðar undirskriftir í Sviss Sport Jóhanna stígur til hliðar eftir fimmtán ár sem formaður Körfubolti Íhugar að hætta í Formúlu 1 Formúla 1 Sjáðu mörkin og sláarskot í naumu tapi Íslands gegn Frakklandi Fótbolti Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enski boltinn Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Íslenski boltinn Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Golf Hamilton ósáttur eftir „frekar hræðilega“ keppni í Japan Formúla 1 Fleiri fréttir Upplifunar- og gæðastjórinn segir mikilvægt að rýna í xF Sérfræðingarnir svara: Spenntastir fyrir nýju Skagamönnunum og strákunum fyrir norðan Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar léku við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum Gulir og glaðir orðnir fjólubláir aftur Viðar með þrennu í fyrri hálfleik í bikarsigri Sveinn Margeir með KA í allt sumar Þórsarar sækja norskan framherja Fram fær Ægi Jarl fyrir fyrsta leik Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Sér um allt í Bestu deildinni: „Fólkið er ekki neitt án leiðtoga“ KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Sjá meira