Norðankaldi og él norðan- og austanlands Atli Ísleifsson skrifar 16. nóvember 2020 07:16 Spáð er skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis. Veðurstofan
Spáð er norðan- og norðaustankalda og éljum norðan- og austanlands í dag og jafnvel skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis, en annars úrkomulaust að kalla. Hiti víða í kringum frostmark í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að nokkuð dragi úr éljum á morgun og létti til fyrir sunnan og vestan og kólni í veðri. „Hægir vindar, léttskýjað og kalt á miðvikudag, en á fimmtudag er spáð vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu suðvestan til um kvöldið og hækkandi hitatölum. Veðurútlit helgarinnar er óljóst og látum það því kyrrt liggja að sinni,“ segir í tilkynningunni. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 8-15 m/s og dálítil él á N- og A-landi, en annars léttskýjað. Frost 0 til 7 stig, minnst syðst. Á miðvikudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og léttskýjað, en lítilsháttar él við A-ströndina fyrri part dags. Frost 2 til 9 stig. Á fimmtudag: Hægviðri, víða léttskýjað og talsvert frost, en vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands síðdegis, slydda eða rigning þar um kvöldið og hlýnar. Á föstudag: Ákveðin austan- og suðaustanátt og rigning eða slydda, en úrkomuminna fyrir norðan. Hlýnandi veður í bili. Á laugardag: Útlit fyrir hvassa norðan- eða norðvestanátt með snjókomu fyrir norðan, en slyddu eða rigningu í öðrum landshlutum og kólnadi veður. Á sunnudag: Líklega fremur hæg suðlæg átt og birtir víða til, en kalt í veðri.
Veður Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Erlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Erlent Fleiri fréttir Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Sjá meira