Landslið Íslands í körfubolta verða af heimaleikjum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. október 2020 20:31 Kvennalandsliðið er á leiðinni til Grikklands. Vísir/Bára
Íslensku landsliðin í körfubolta áttu að spila leiki í Laugardalshöllinni í nóvember. Karlaliðið átti að spila tvo leiki í undankeppni HM á meðan kvennaliðið átti stakan heimaleik í undankeppni EM áður en það myndi halda ytra. Nú er ljóst að ekkert verður af leikjunum í Laugardalshöllinni. Þess í stað fara bæði lið erlendis og verða fyrri umferðir beggja undankeppna leiknar á aðeins nokkrum dögum. Karlalandsliðið heldur til Slóvakíu á meðan kvennalandsliðið fer til Grikklands. Íslenska karlalandsliðið er á leið til Slóvakíu.Vísir/Bára Upprunalega átti A-landslið kvenna að mæta Slóveníu í Laugardalshöllinni þann 12. nóvember og Búlgaríu ytra þremur dögum síðar. Báðir leikir eru hluti af undankeppni EM sem fram fer á næsta ári. Nú fer liðið hins vegar til Heraklion í Grikklandi þar sem það mætir heimastúlkum, Slóvenum og Búlgörum frá 8. til 15. nóvember. A-landslið karla átti tvo heimaleiki gegn Lúxemborg og Kósovó framundan í Laugardalnum. Báðir leikir hluti af undankeppni HM sem fram fer árið 2023. Áttu leikirnir að fara fram 26. og 29. nóvember. Ekkert verður af því og mun liðið í stað þess halda til Bratislava í Slóvakíu þar sem það mætir heimamönnum, Lúxemborg og Kósovó dagana 23. til 29. nóvember. Here are the hosts for the upcoming #FIBAWC 2023 European Pre-Qualifiers! November 23-29 https://t.co/kD5f88szqO pic.twitter.com/1DvATgEGOC— Basketball World Cup (@FIBAWC) October 8, 2020 Þetta kemur fram á vef Alþjóða körfuknattleikssambandsins, FIBA. Ástæðan er kórónufaraldurinn og er talið að þetta fyrirkomulag henti betur að svo stöddu. Sem stendur mun síðari umferð beggja undankeppna fara fram með svipuðu sniði í febrúar á næsta ári.
Körfubolti Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira