Vætusamt fyrir norðan og austan en milt miðað við árstíma Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2020 07:15 Von er á norðlægri átt á föstudag. Vísir/Vilhelm
Fremur vætusamt verður á landinu norðan- og austanverðu í dag og á morgun en lengst af þurrt sunnan- og vestantil. Fremur milt miðað við árstíma, en hitinn verður á bilinu þrjú til átta stig. Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar, en von er á norðlæg átt á föstudag. Verður þurrt um landið sunnanvert, en úrkoma fyrir norðan, einkum þó austan Tröllaskaga. „Kólnar fyrir norðan svo að úrkoma gæti orðið á slyddu eða snjókomuformi ofan 300 metra, en flestir fjallvegir liggja ofar en það á norðanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg átt 3-8 m/s og rigning á N-verðu landinu og slydda til fjalla, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 2 til 7 stig. Á föstudag: Norðan 3-8 m/s og víða bjartviðri, en norðvestan 10-13 m/s og lítilsháttar rigning eða slyddu NA-lands. Kólnandi veður fyrir norðan í bili. Á laugardag: Hæg breytileg átt, víða bjart og fremur svalt veður, en vaxandi SA-átt, þykknar upp og hlýnar V-til og rigning þar um kvöldið. Á sunnudag: Suðlæg og síðar vestlæg átt og rigning í öllum landshlutum. Fremur milt í veðri. Á mánudag: Vestlæg átt og víða þurrt en fer að rigna V-ast um kvöldið. Hiti 2 til 7 stig. Á þriðjudag: Útlit fyrir milda suðlæga átt með rigningu, en þurrt A-til.
Veður Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Sjá meira