Óttar Magnús fer til Feneyja Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2020 15:28 Óttar Magnús Karlsson hefur skorað 9 mörk í 12 deildarleikjum í sumar fyrir bikarmeistara Víkings. VÍSIR/BÁRA
Óttar Magnússon Karlsson, framherji Víkings R., hefur gengið frá samkomulagi við ítalska B-deildarfélagið Venezia og mun fara þangað í haust. Þetta fullyrti fjölmiðlamaðurinn Hjörvar Hafliðason í hlaðvarpsþætti sínum Dr. Football. Sagði Hjörvar að Óttar, sem er 23 ára, myndi geta spilað næstu leiki með Víkingi eða fram að 5. október, þegar félagaskiptaglugginn í Evrópu lokast. Óttar, sem skorað hefur 9 mörk í 12 deildarleikjum í sumar, gæti því leikið sex leiki til viðbótar í Pepsi Max-deildinni en Hjörvar sagði að síðasti leikur kappans yrði gegn KA 4. október. Víkingur siglir frekar lygnan sjó í deildinni – níu stigum frá Evrópusæti og sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið. Venezia hefur þegar náð í einn Íslending því félagið keypti Bjarka Stein Bjarkason af ÍA í síðasta mánuði. Venezia varð í 11. sæti af 20 liðum í ítölsku B-deildinni á síðustu leiktíð, sem lauk ekki fyrr en 31. júlí vegna kórónuveirufaraldursins. Ný leiktíð hefst eftir viku, 26. september. Óttar er ekki ókunnugur atvinnumennsku. Hann fór 16 ára gamall til Ajax sumarið 2013 og lék með yngri liðum félagsins. Hann hefur einni verið hjá Molde í Noregi, að láni hjá Trelleborg í Svíþjóð og svo hjá Mjällby í Svíþjóð áður en hann kom aftur til Víkings fyrir rúmu ári síðan.
Víkingur Reykjavík Pepsi Max-deild karla Ítalski boltinn Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Fleiri fréttir Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Sjá meira