Vestri og Þróttur unnu úrvalsdeildarnýliðana | Björn með tvö fyrir FH Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2020 21:19 Björn Daníel Sverrisson skoraði tvö mörk fyrir FH í kvöld. vísir/daníel
Vestri og Þróttur R., sem leika í 1. deild í sumar, unnu úrvalsdeildarlið í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld. Vestri vann 1-0 sigur á Fjölni í Egilshöll þar sem Viktor Júlíusson skoraði sigurmarkið skömmu fyrir hálfleik. Lærisveinar Bjarna Jóhannssonar eru því með 6 stig og nú jafnir Fjölni og ÍBV í 2.-4. sæti, stigi á eftir Val. Vestri og ÍBV eiga leik til góða á Val og Fjölni. Þróttarar unnu 2-1 sigur gegn Gróttu sem líkt og Fjölnir verður nýliði í Pepsi Max-deildinni í sumar. Í sama riðli vann FH 2-1 sigur gegn Grindavík eftir að hafa lent undir þegar Alexander Veigar Þórarinsson skoraði úr víti á 51. mínútu. Björn Daníel Sverrisson svaraði því marki með tveimur mörkum á sex mínútum strax í kjölfarið. FH er á toppi 3. riðils með 10 stig eftir fjóra leiki, fjórum stigum á undan Þór og HK sem mætast á morgun. Grótta er með 5 stig, Þróttur 3, og Grindavík 1. Loks vann KR 3-1 sigur gen Aftureldingu í Mosfellsbæ. KR-ingar eru því jafnir Breiðabliki að stigum á toppi 1. riðils, með þrjá sigra í þremur leikjum, en Afturelding er með eitt stig.Upplýsingar um markaskorara eru af urslit.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“