Þorsteinn Halldórs um símtalið frá KSÍ: Það var liggur við bara skellt á mig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2020 14:00 Þorsteinn Halldórsson segir söguna af símtailinu frá KSÍ í Pepsi Max mörkunum í gær. Skjámynd/S2 Sport
Þorsteinn Halldórsson var búinn að vinna titla í kvennaboltanum á Íslandi þegar síðast var skipt um landsliðsþjálfara í október 2018. Þorsteinn var í vafa um hvernig hann átti að svara þegar hann var spurður beint út í það hvort honum hafi verið boðið starfið haustið 2018. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, var gestur í Pepsi Max mörkum kvenna í gærkvöldi en hann hefur verið að gera frábæra hluti með Blikaliðið í sumar. Blikakonur eru á toppnum í Pepsi Max deild kvenna og hafa ekki fengið á sig mark. Þorsteinn Halldórsson fékk ekki landsliðsþjálfarastöðuna þegar KSÍ skipti síðast um landsliðsþjálfara en Jón Þór Hauksson tók þá við liðinu. Helena Ólafsdóttir, umsjónarkona Pepsi Max markanna vildi vita meira um það mál í þættinum í gær. „Ég get ekki sleppt þér án þess að spyrja þig að einu. Þegar þú varst búinn að þjálfa Breiðablik í fjögur ár þá var skipt um landsliðsþjálfara. Var þér boðið starfið eða er það eitthvað sem þú hefur áhuga á?,“ spurði Helena Ólafsdóttir. „Ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta. Mér var í sjálfu sér ekki boðið starfið en það var hringt í mig og spurt hvort ég hefði einhvern áhuga að koma og hitta þau. Ég var efins og það var liggur við bara skellt á mig,“ sagði Þorsteinn Halldórsson en hélt áfram: „Ég var ekki hvattur til þess og það var ekki ýtt við mér en það var allavega hringt í mig,“ sagði Þorsteinn. „Fannst þér þetta ekki vera: Við ætlum að fá þig Steini, ertu til í að koma og hitta okkur hér í höfuðstöðvum KSÍ,“ spurði Helena. „Alls ekki,“ svaraði Þorsteinn og brosti. Það má sjá þetta allt saman í myndbandinu hér fyrir neðan. Klippa: Pepsi Max mörk kvenna: Þorsteinn Halldórs og landsliðið
Pepsi Max-deild kvenna Pepsi Max-mörkin KSÍ Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira