Svona var 101. upplýsingafundur almannavarna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. ágúst 2020 13:35 Frá fundi dagsins. Mynd/Lögreglan Boðað hefur verið til upplýsingafundar í dag vegna kórónuveirufaraldursins. Fundurinn hefst klukkan 14.03 og verður hann í beinni útsendingu á Vísi, sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi og á Bylgjunni. Alma Möller, landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fara yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni. Gestur fundarins verður Una Hildardóttir, formaður Landssambands ungmennafélaga. Hér að neðan má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu, auk þess sem að þar fyrir neðan má fylgjast með framvindu fundarins í beinni textalýsingu. Enginn greindist með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær. Þrír greindust hins vegar með virk smit við landamæraskimun, einn greindist með mótefni og beðið er niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá tveimur til viðbótar. 289 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og 3.105 á landamærunum. Þá voru 56 sýni greind hjá Íslenskri erfðagreiningu. Samkvæmt upplýsingum á covid.is eru 114 í einangrun eins og í gær og 839 eru í sóttkví.
Boðað hefur verið til upplýsingafundar í dag vegna kórónuveirufaraldursins. Fundurinn hefst klukkan 14.03 og verður hann í beinni útsendingu á Vísi, sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi og á Bylgjunni. Alma Möller, landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fara yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni. Gestur fundarins verður Una Hildardóttir, formaður Landssambands ungmennafélaga. Hér að neðan má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu, auk þess sem að þar fyrir neðan má fylgjast með framvindu fundarins í beinni textalýsingu. Enginn greindist með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær. Þrír greindust hins vegar með virk smit við landamæraskimun, einn greindist með mótefni og beðið er niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá tveimur til viðbótar. 289 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og 3.105 á landamærunum. Þá voru 56 sýni greind hjá Íslenskri erfðagreiningu. Samkvæmt upplýsingum á covid.is eru 114 í einangrun eins og í gær og 839 eru í sóttkví.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Upplýsingafundir almannavarna og landlæknis Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira