Ný lægð á leið til landsins Vésteinn Örn Pétursson skrifar 3. ágúst 2020 07:38 Veðurspáin fyrir hádegi í dag. Veðurstofa Íslands/Skjáskot
Víðáttumikil lægð er nú yfir landinu, nánast kyrrstæði og grynnist. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Í miðju lægðarinnar er rólegasta veður. Von er á nýrri lægð til landsins í vikunni. Búast má við hægri breytilegri átt eða hafgolu í dag. Skýjað verður að mestu og einhver væta í flestum landshlutum, skúrir eða lítilsháttar rigning. Hiti verður víða á bilinu 10 til 15 stig. Á morgun verður hæg austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og smáskúrir víðast hvar. „Eftir þessi rólegheit má búast við austlægri átt, 5-13 m/s og rigningu, einkum sunnan- og vestanlands, þegar ný lægð kemur upp að landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofunni: Á þriðjudag: Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað og lítilsháttar væta í flestum landshlutum. Hiti víða 10 til 15 stig. Á miðvikudag: Austlæg átt 5-13 m/s og fer að rigna, fyrst sunnantil, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast vestanlands. Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-10 og rigning í öllum landshlutum, en styttir upp og birtir til norðaustanlands eftir hádegi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á föstudag: Suðvestlæg átt og áfram dálítil rigning, eða skúrir, en þurt að kalla norðaustantil. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðlæg átt og dálítil rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og bjart veður norðaustanlands. Hlýnar lítillega. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og áfram lítilsháttar vætu sunnan - og vestantil. Þurrt og bjart fyrir norðan og austan. Hlýnar enn frekar.
Mest lesið Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Ófremdarástandi lýst: Þrír stjórar í leyfi, einelti og hrun í starfsánægju Innlent Hafa fundið Cessna-vélina Erlent Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Innlent Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Erlent Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Innlent Mildari spá í kortunum Veður Bíða í allt að þrjá tíma: „Ætli það sé ekki bara helvítis veðurspáin“ Innlent Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Innlent Fleiri fréttir Mildari spá í kortunum Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Um sautján stiga frost í Skagafirði í nótt Frost komst í fjórtán stig í nótt Norðanáttin gengur niður Klukkustunda bið eftir dekkjaskiptum í vetrarparadísinni Stormur eða hvassviðri suðaustantil Gul viðvörun á landinu sunnan- og austanverðu Svöl norðanátt og hálka á vegum Stefnir í fyrstu hálku haustsins á höfuðborgarsvæðinu Rigning eða slydda suðvestantil Kólnar í veðri næstu daga Hægviðri og þokusúld framan af degi Hæg breytileg átt og dálítil væta Vindur fyrir norðan og rigning og þokusúld vestanlands Dálítil væta og hiti að átján stigum Tuttugu stig á nokkrum stöðum Allt að 18 stig í dag Allt að átján stig fyrir austan á morgun Vindur fer smá saman minnkandi Fer að rigna og bætir í vind Smávægileg útköll vegna óveðursins Urðu fyrir sjóskvettu í beinni Spá mikilli ölduhæð við Faxaflóa í vestan hvassviðri Sjór geti gengið á land í Faxaflóa á morgun Gular viðvaranir vegna vestanstorms Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn Hægur vindur og skúrir eða slydduél Lægð á Grænlandshafi stjórni veðrinu þennan daginn Sleppum ekki alveg við leiðindi Sjá meira