Rúrik ekki á leið í Pepsi Max deildina Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. júlí 2020 15:45 Rúrik í leiknum gegn Argentínu á HM 2018. Vísir/Vilhelm
Sögusagnir þess efnis að Rúrik Gíslason gæti verið á leið í Pepsi Max deildina virðast ekki á rökum reistar. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Rúriks, tók fyrir þær í viðtali við RÚV í dag. Sagði hann að það væru einkar litlar líkur á því að Rúrik myndi spila á Íslandi í sumar. Rúrik hefur nú þegar hafnað ýmsum tilboðum erlendis frá og reikna þeir með því að hann fái enn fleiri á sitt borð á næstu dögum. Það mun skýrast á næstu vikum hvar Rúrik mun spila næstu misserin en litlar sem engar líkur eru á því að það verði hér á landi. Samkvæmt orðinu á götunni hefur Rúrik fengið tilboð frá bæði Víking og FH en ku ekki hafa mikinn áhuga á spila hérlendis að svo stöddu. Rúrik er 32 ára gamall og hefur leikið sem atvinnumaður frá árinu 2005. Hefur hann leikið allan sinn atvinnumannaferil í Danmörku og Þýskalandi. Rúrik var einnig á mála hjá Anderlecht í Belgíu og Charlton Athletic í Englandi án þess þó að leika fyrir aðallið félaganna. Þá á Rúrik 52 A-landsleiki að baki sem og fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands. Var hann í leikmannahópi Íslands á HM í Rússlandi. Kom hann inn af bekknum gegn Argentínu og var svo í byrjunarliðinu gegn Nígeríu.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir KR skoraði sex og fór á toppinn Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Sjá meira