Sameiningarráðherra Suður-Kóreu stígur til hliðar vegna deilna við norðrið Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 17. júní 2020 08:30 Kim Yeon-chul, sameiningarráðherra Suður-Kóreu, sagði af sér vegna vaxandi ólgu milli ríkisins og Norður-Kóreu. Getty/Chung Sung-Jun
Suðurkóreski sameiningarráðherrann hefur tilkynnt afsögn sína vegna snöggaukinnar ólgu milli landsins og Norður-Kóreu. Ráðherrann, Kim Yeon-chul, tók einnig ábyrgð á vaxandi spennu milli ríkjanna. Í gær stigmagnaðist spennan milli ríkjanna tveggja þegar norðurkóreski herinn sprengdi samvinnustofnun Kóreuríkjanna á landamærunum í loft upp. Þá hefur norðurkóreski herinn einnig lýst því yfir að hann muni senda herlið á hlutlausa svæðið sem aðskilur löndin tvö og hefur verið síðan vopnahléssamningarnir voru undirritaðir á sjötta áratugi síðustu aldar. Fyrr í dag, miðvikudag, útskýrðu yfirvöld í Pyongyang hvers vegna þau hefðu ákveðið að sprengja upp samvinnustofnunina í Kaesong. Í fréttagrein sem birtist í fréttablaði norðurkóreska ríkisins var suðrið sakað um að hafa brotið samninga sem gerðir voru árið 2018. Systir Kim Jong-un, Kim Yo-jong, kallaði þá forseta suðursins „þjón Bandaríkjanna.“ Deilur milli ríkjanna tveggja hafa magnast undanfarið meðal annars vegna þess að norðanmenn fullyrða að fólk úr suðrinu sé að fara inn á hlutlausa svæðið í óleyfi til að koma áróðursplöggum til Norður-Kóreu.
Norður-Kórea Suður-Kórea Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira