Vildi skipta um leikskipulag eftir jöfnunarmarkið gegn Bayern en Ferguson sagði honum að setjast Anton Ingi Leifsson skrifar 20. maí 2020 07:00 Steve McClaren og Ferguson saman fyrir miðri mynd. vísir/getty
Sem betur fer hlustaði Sir Alex Ferguson ekki á ráð Steve McClaren að breyta um leikskipulag Manchester United eftir jöfnunarmarkið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 1999 þegar United spilaði við Bayern Munchen - því sigurmark United kom skömmu síðar. McClaren var aðstoðarmaður Ferguson þetta tímabilið en Þjóðverjarnir leiddu 1-0 í hálfleik með marki frá Mario Basler. United gerði allt hvað þeir gátu til þess að freista gæfunnar undir lokin, breyttu um leikskipulag og uppskáru eftir því er Teddy Sheringham jafnaði á 90. mínútu. „Stundum,“ svaraði McClaren þegar hann var spurður út í það hvort að hann hafi gefið Ferguson einhver taktísk ráð. „Í úrslitaleiknum þá jöfnuðum við og ég sagði að við ættum að fara aftur í 4-4-2 en hann sagði: Nei, sestu Steve. Leikurinn er ekki búinn. Og hann var svo sannarlega ekki búinn,“ en United skoraði sigurmarkið Ole Gunnar Solskjær stuttu síðar. En hvernig var samband Ferguson og McClaren? „Hann hafði meiri reynslu en ég. Ef hann bað mig um mína skoðun þá fékk hann hana en stærstan hluta tímans var ég að læra og þurfti að læra fljótt.“ McClaren fór frá Man. United til Middlesbrough þar sem hann vann fyrsta bikar félagsins árið 2004 en frá Middlesbrough fór hann yfir í enska landsliðið. Hann var rekinn eftir að Englandi mistókst að komast á EM 2008.
Enski boltinn Meistaradeildin Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Fleiri fréttir Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Sjá meira