Ndombele íhugar framtíð sína hjá Tottenham eftir æfinguna með Mourinho Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2020 23:00 Samband Mourinho og Ndombele er ekki upp á tíu. vísir/getty
Franski fjölmiðillinn L’Equipe segir að framtíð Tanguy Ndombele hjá Tottenham sé óráðin. Hann sé ekki sáttur með framkomu Jose Mourinho stjóra félagsins gagnvart sér og ekki skánaði ástandið eftir atvikið fyrr í mánuðinum. Flestir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar æfa einir þessa daganna vegna kórónuveirunnar; ýmist heima hjá sér eða þeir fari einir út að hlaupa enda mega liðin ekki æfa saman og heldur ekki tveir og tveir leikmenn saman. Það sást svo til Ndombele og Mourinho saman í almenningsgarði fyrr í mánuðinum þar sem Mourinho lét Frakkann gera ýmsar æfingar. Þetta ku ekki hafa fallið vel í kramið hjá Frakkanum sem er afar ósáttur við meðferð Mourinho á sér. Tanguy Ndombele 'considering future at Tottenham after being left shocked by Jose Mourinho's surprise training session as Barcelona express interest https://t.co/nvEGz51mAP— MailOnline Sport (@MailSport) April 12, 2020 Í síðasta mánuði, áður en enski boltinn var settur á ís, þá tók Mourinho Frakkann útaf í hálfleik gegn Burnley og sagði að hann þyrfti að fara gera mun betur. Frammistaða hans væri ekki boðleg í enska boltanum og svo fylgdi þetta atvik í almenningsgarðinum þar á eftir. Ndombele var keyptur til Tottenham síðasta sumar frá Lyon en hann kostaði rúmlega 50 milljónir punda. Hann á sex A-landsleiki fyrir Frakkland en hefur átt erfitt með að fótfesta sig í enska boltanum.
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Fleiri fréttir Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Sjá meira