Umboðsmaður Coutinho segir hann spenntan fyrir endurkomu í enska boltann Arnar Geir Halldórsson skrifar 12. apríl 2020 13:00 Philippe Coutinho vísir/getty
Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho gæti snúið aftur í enska boltann í sumar en hann þykir ekki eiga framtíð hjá Barcelona. Coutinho hefur leikið sem lánsmaður með Bayern Munchen á yfirstandandi leiktíð en þýsku risarnir eru ekki áhugasamir um að kaupa kappann sem hefur þó staðið sig ágætlega í Þýskalandi; skorað 8 mörk í 22 deildarleikjum. Arsenal, Everton og Chelsea eru öll sögð áhugasöm um að fá þennan 27 ára gamla Brasilíumann í sínar raðir en hann þekkir vel til á Englandi eftir að hafa leikið með Liverpool við góðan orðstír í fimm ár. „Hann naut þess virkilega að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann myndi örugglega elska að snúa aftur þangað,“ segir Kia Joorabchian, umboðsmaður Coutinho, sem segir þó ómögulegt að taka einhverjar ákvarðanir um framtíðina nú í ljósi ástandsins í heiminum. „Stærsta spurningamerkið snýr að fjárhag félaganna í kjölfarið af þessu ástandi sem nú ríkir. Það snýr bæði að Barcelona og félögunum í ensku úrvalsdeildinni.“ segir Kia. Kia er sjálfur annálaður stuðningsmaður Arsenal en hann segir það ekki hafa nein áhrif í komandi viðræðum. „Það er ekkert leyndarmál að ég er stuðningsmaður Arsenal en það hefur engin áhrif á mína skjólstæðinga. Ég reyni ekki að ýta mínum leikmönnum í ákveðin félög,“ segir Kia.
Enski boltinn Þýski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Hnéskel Franks Arons brotnaði Körfubolti „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Íslenski boltinn Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu Sport Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Íslenski boltinn Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Fleiri fréttir Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Sjá meira