Skutu viðvörunarskotum að fraktskipi frá Norður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 27. nóvember 2019 08:52 Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, hefur heitið því að bæta samskipti Kóreuríkjanna en það hefur gengið illa að undanförnu. Vísir/EPA
Sjóher Suður-Kóreu skaut í nótt viðvörunarskotum að fraktskipi frá Norður-Kóreu sem hafði ratað inn í landhelgi ríkisins í Gulahafinu. Eftir að viðvaranir voru gefnar var skotið að skipinu. Nú er talið að áhöfn skipsins hafi siglt því inn í landhelgi Suður-Kóreu vegna veðurs og vélarvandræða. „Við erum að vinna í því að reka skipið úr landhelgi okkar,“ hefur Yonhap fréttaveitan eftir yfirlýsingu frá herforingjaráði Suður-Kóreu. Enn fremur segir að svo virðist sem að um slys hafi verið að ræða og segja hershöfðingjarnir að engar ógnanir hafi borist úr norðri vegna atviksins.Yonhap segir óvenjulegt að fraktskipum sé siglt inn í landhelgi Suður-Kóreu, þó áhafnir fiskiskipa geri það reglulega. Þetta er í annað sinn sem skotið er viðvörunarskotum að fraktskipi frá Norður-Kóreu, samkvæmt frétt Reuters, og var það síðast gert í maí 2017.Í september var viðvörunarskotum þó skotið að annars konar skipi sem var á reki. Að endingu sendi sjóherinn vélstjóra um borð í skipið sem gerðu við vél þess og var því svo siglt til Norður-Kóreu. Töluverð spenna er þó á svæðinu um þessar mundir eftir að Norður-Kórea gerði stórskotaliðsæfingar þar á laugardaginn.
Norður-Kórea Suður-Kórea Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira