Athugasemdir við „viðtal“ Ole Anton Bieltvedt skrifar 2. nóvember 2019 14:35 Sl. miðvikudag átti fréttamaður Vísis „viðtal“ við formann Félags leiðsögumanna við hreindýraveiðar undir fyrirsögninni „Segir kæru Jarðarvina ekki vera í anda vísindanna“. Er hér vísað til sakamálakæru okkar Jarðarvina á hendur Náttúrustofu Austurlands (NA), frá 23. október, þar sem við kærðum NA vegna meintrar vanrækslu, sem bitnaði svo á velferð hreindýra, sem stofan ber ábyrgð á. Við viljum gera eftirfarandi athugasemdir við þetta „viðtal“. „Viðtal“ hefur undirritaður innan gæsalappa, því að viðmælandi blaðamanns virðist hafa lagt til bæði spurningar og svör. Augljóslega gengur þetta „viðtal“ út á það, að gera kæru Jarðarvina á hendur Náttúrustofu Austurlands (NA) tortryggilega: Hér eru okkar athugasemdir: Viðmælandi fréttamanns er leiðsögumaður hreindýraveiðimanna, hagsmunaaðili varðandi veiðar. Hefur hann kannske verulegan hluta sinna tekna af hreindýraveiðum. Talar svo um hina vísindalegu hlið málsins. En er ekki vísindamaður, svo vitað sé. Vart er þetta trúverðug. Tímasetning rannsóknar og skýrslugjafar til umhverfisráðherra kemur frá Náttúrustofu Austurlands (NA) sjálfri svo og ráðherra. Með bréfi NA til ráðherra frá 27. júlí 2018 býðst NA til að kanna þessi atriði: 1. Afkomu kálfa að vetri 1991-2018 2. Rannsókn á afkomu kálfa á öllu útbreiðslusvæði hreindýra veturinn 2018-2019. 3. Líkamlegt atgervi kálfa að hausti 2018. Fylgir þessu tilboði kostnaðaráætlun upp á um 8 milljónir króna. Féllst ráðherra á þetta tilboð NA og staðfestir það við okkur, Jarðarvini, með bréfi frá 1. nóvember 2018. Þar segir m.a. „Meðfylgjandi er samþykkt tillaga náttúrustofnunarinnar um rannsóknir og er markmiðið að fá niðurstöðu úr þeim fyrir næsta veiðitímabil til þess að undirbyggja ákvörðun um veiðitíma hreindýra (2019)“. „Rannsókn eins og þessi, er náttúrlega ekki gerð á einu ári“, eins leiðsögumaðurinn fullyrðir í þessu „viðtali“, er í þessu samhengi því út í hött. Vænta verður þess, að bæði NA og ráðherri hafi hér stefnt á vísindalega rannsókn og skýrslugjöf. NA hafði lokið vortalningu allra dýranna 15. maí 2019, eftir að hafa talið haustfjölda í október 2018, eins og tölvupóstur NA til okkar frá 15.05.19 sýnir og staðfestir. Það átti bara eftir að stilla upp og túlka þessar tölur. Hins vegar dróst það og dróst, að afhenda tölurnar og uppstillingu niðurstaða til ráðherra, án þess að fyrir því hafi verið færðar neinar ástæður eða skýringar, og neyddist ráðherra til að ákveða óbreyttan veiðitíma nú í haust; aftur voru kýr skotnar frá yngst 8 vikna gömlum kálfum, vegna þessarar meintu vanrækslu og skýrsluskorts NA. Við teljum, að NA hafi haldið að sér höndum með skýrar tölur og skýrslu til ráðherra, til að „trufla ekki veiðar“ í ár, en veiðimenn og hagsmunaaðilar vildu halda þeim óbreyttum. Þess vegna var kært, því með þessum hættu var NA, annars vegar, að bregðast þeirri skyldu sinni, að gæta velferðar og hagsmuna dýranna, og, hins vegar, að láta hagsmuni og vilja veiðimanna ganga fyrir hagsmunum dýranna, ef rétt reynist. „Í rauninni höfum við ekkert í höndunum um það að það (lengdur griðatími kálfa) breyti einhverju fyrir kálfana af því að sú rannsókn er ekki til“ segir leiðsögumaðurinn. Það kann að vera, að hann hafi engar rannsóknir undir höndum, en þær höfum við. Það eru fjölmargar rannsóknir til, sem sýna og sanna, að ungviði, sem hafa misst móður sína, eiga sér erfitt uppdráttar, og verður staða þeirra verri eftir því, sem þeir eru yngri, þegar þeir verða móðurlausir. Hér eru t.a.m. nokkrar slíkar tilvitnanir í vísindagreinar, sem við höfum aflað: „Kálfur sem missir móður sína hefur minni lífslíkur að vetri þar sem hann nýtur ekki mjólkur né leiðsagnar hennar við beitina“ (Sjennberg and Slagsvold (1968)). „Niðurstaðan var að munaðarleysingjar þrauki síður af í hörðum vetrum“ (Holand o.fl. (2012)). „Það hefur afgerandi þýðingu fyrir afkomumöguleika afkvæma stórra spendýra á norðurhveli jarðar og möguleika þeirra til að lifa af, hversu lengi og í miklum mæli þau njóta umhyggju og umönnunar foreldra“ (Stearns (1992)). „Niðurstaðan var að færri móðurlausir kálfar lifðu af en þeir sem móður áttu (Joly (2000)). „Það liggur fyrir að móðurlausir kálfar meðal hjarðdýra lenda neðst í goggunarröðinni“ (Gioveng and Waring (1991)). „Munaðarleysingjum sem eru lægstir í goggunarröðinni er oft ýtt út í jaðar hópsins“ (Green et al. (1989)). „Kostir náins sambands móður og afkvæmis umfram mjólkurgjöf felast í umönnun, vernd og kennslu móður á grunn venjum, nýtingu beitilands, leiða til að lifa af og leita sér skjóls“ (Lent (1974)). Í raun ætti almenn skynsemi að duga flestum til að skilja þessa stöðu. Leiðsögumaðurinn fullyrðir, að veiðimenn, hann og aðrir leiðsögumenn hafi engan annan tíma en haustið, ágúst og fram til 20. september, til að veiða hreindýr. Þetta er rangt. Þeir gætu eins veitt frá 1. nóvember og fram til 20. desember; farið í vetrarveiðar, í stað sumar- og haustveiða, en, auðvitað þætti veiðimönnum það kalt og óþægilegt, svo að ekki sé nú talað um leiðsögumenn. Fyrir kálfana væri þetta, hins vegar, til mikilla bóta, þar sem þeir væru þá minnst orðnir 5 mánaða, móðirin væri búin að taka fyrsta skrefið inni í vetrarlífernið með þeim, en auk þess rýfur kýrin nokkuð sambandið við kálfinn í október, á fengitíma, þó tímabundið sé, og væri því móðurleysi kálfa, með og frá nóvember, þeim nokkru bærilegra. Það var í fréttum nýlega, að 580.000 lömbum yrði slátrað hér þetta haust. Þannig voru væntanlega 700-800.000 fjár á fjalli síðasta sumar. Hestar í landinu eru 70-80.000, og gengur nokkur hluti þeirra villtur á hálendinu. Þannig eru minnst 800.000 grasbítar í landinu. Hreindýr deila fæði með öðrum grasbítum 50-70%. Fjöldi hreindýra er hins vegar aðeins 5-7.000. Innan við 1% grasbíta. Hreindýrahagar eru, auk þess, ekki nema á litlum hluta landsins; rétt á Austurlandi. Það, að tala um hættu á offjölgun, sulti og horfalli dýranna, er því hreinn fyrirsláttur veiðimanna. Á Svalbarða lifa 22.000 hreindýr, á miklu minna svæði, en hreindýr hafa hér. Tal um að hreindýr séu aðflutt dýr, væntanlega til að rýra stöðu þeirra og gildi fyrir ískenzkt lífríki, eru villandi tal. Öll spendýr á Íslandi, líka hestar, kindur og kýr, eru aðflutt eða innflutt. Eina upprunalega spendýrið á Íslandi er pólarrefurinn.Höfundur er formaður Jarðarvina. Athugasemd fréttastjóra Vísis Fréttastofa hafnar þeirri ályktun sem formaður Jarðarvina virðist draga að viðmælandi hafi lagt til spurningar fréttamanns við vinnslu fréttar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Skotveiði Mest lesið Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson skrifar Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson skrifar Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Hinn þríklofni Jóhann Páll Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áskoranir Ísafjarðarbæjar í húsnæðismálum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Fjármagn í þágu fjölskyldna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Hólastóllinn Hjalti Pálsson skrifar Skoðun 8. sætið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingin Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar sálfélagsleg áhætta verður rekstraráhætta Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Nýsköpun þrífst ekki í óvissu Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson skrifar Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar Skoðun Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann Skoðun
Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar
Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar
Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar
Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar
Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar
Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann Skoðun