Fram rúllaði yfir Stjörnuna í bikarnum | KA/Þór, HK, Fjölnir og ÍR einnig komin áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 6. nóvember 2019 22:09 Hildur átti frábæran leik í kvöld. vísir/bára
Fram er komið í átta liða úrslit Coca-Cola bikars kvenna eftir tíu marka sigur á Stjörnunni, 28-18, í TM-höllinni í kvöld. Fram var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14-11, en keyrðu yfir Garðbæinga í síðari hálfleiknum. Hildur Þorgeirsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fram og Steinunn Björnsdóttir fimm. Þórey Anna Ásgeirsdóttir og Stefanía Theodórsdóttir skoruðu sex hvor fyrir Stjörnuna. KA/Þór vann átta marka sigur á Selfossi, 29-21, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13-9. Katrín Vilhjálmsdóttir, Rakel Sara Elvarsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir gerðu allar fimm mörk fyrir norðanstúlkur en Hulda Dís Þrastardóttir gerði níu fyrir Selfoss. ÍR vann sigur með minnsta mun á Gróttu, 20-19, er liðin mættust í Austurberginu í kvöld. Breiðholtsstúlkur leiddu 10-8 í hálfleik. Ólöf Marín Hlynsdóttir dró vagninn fyrir ÍR og rúmlega það en hún skoraði helming marka liðsins eða tíu mörk. Rut Bernódusdóttir skoraði fjögur fyrir Gróttu. HK vann einnig eins marks sigur en Kópavogsliðið vann Aftureldingu, 24-23, eftir að hafa verið 14-12 undir í hálfleik. Díana Kristín Sigmarsdóttir var frábær í liði HK og skoraði átta mörk en Þóra María Sigurjónsdóttir gerði sex mörk fyrir gestina úr Mosfellsbæ. Ekki hefur borist leikskýrsla úr Fylkishöll þar sem Fjölnir vann 27-21 sigur á heimastúlkum í Fylki.
Olís-deild kvenna Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Haukakonur upp í þriðja sætið Strákarnir hans Dags fengu skell Elín Rósa var atkvæðamikil þegar Blomberg-Lippe fór á toppinn Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu „Mér líður bara ömurlega“ Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Svona meiddist Elvar „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Elvar úr leik á EM Tvö hæfileikabúnt í Íslendingabæinn Kristianstad Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Logi Geirs hefði verið sáttur með svona „hárgreiðsluskot“ „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Sjá meira