Haukar ráða þjálfara á fimm ára samning Anton Ingi Leifsson skrifar 23. október 2019 14:51 Igor Bjarni Kostic er á leið á Ásvelli. mynd/haukar
Haukar hafi fundið nýjan þjálfara til þess að stýra karlaliði félagsins í annarri deildinni næsta sumar en tilkynnt var um nýjan þjálfara í dag. Igor Bjarni Kostic skrifaði í dag undir samning við félagið en samningurinn er til fimm ára. Igor kemur frá Noregi þar sem hann hefur starfað undanfarin ár. Igor hefur starfað hjá Ull/Kisa í norsku B-deildinni en þar hefur hann verið yfirmaður akademíu félagsins auk þess sem hann stýrði varaliði liðsins. Hann er sonur Lúka Kostic sem hefur verið þjálfari hjá Haukum síðustu ár, bæði hjá meistaraflokki félagsins, sem og í yngri flokkum en Haukarnir féllu úr Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð. Lúka lék einnig með ÍA, Grindavík og Þór á fótboltaferli sínum hér á landi en auk þess að hafa þjálfað hjá Haukum hefur Lúka meðal annars þjálfað yngri landslið Íslands og Grindavík. „Ráðning Igors Bjarna er liður í að styrkja enn frekar þjálfarateymi knattspyrnudeildar Hauka þar sem reynsla hans og þekking mun nýtast í að byggja upp efnilegt knattspyrnufólk í yngri flokkum félagsins og gera það að öflugum meistaraflokksleikmönnum. Því eru afar spennandi tímar framundan í Haukum!“ segir í tilkynningu Hauka.
Hafnarfjörður Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira