Emil segir stöðuna spes en Birkir var kominn með samningstilboð sem gekk ekki upp Anton Ingi Leifsson skrifar 3. september 2019 20:30
Miðjumennir Emil Hallfreðsson og Birkir Bjarnason eru í þeirri óvenjulegu stöðu að vera án félagsliðs þessa stundina. Emil hefur leikið á Ítalíu í rúm tíu ár og nú síðast með Udinese en hefur sett samningaviðræðurnar á ís til þess að einbeita sér að landsliðinu. „Þetta er mjög spes staða. Ég hef aldrei lent í þessu áður en þetta fer í reynslubankann,“ sagði Emil í samtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Ég hef verið duglegur að æfa og að mínu mati er ég í betra standi en í júní gegn Tyrkjum þar sem ég var nýkominn úr meiðslum.“ „Þá gat ég spilað 90 mínútur og gert ágætis hluti svo ég verð tilbúinn á laugardaginn ef þess er þörf.“ Birkir Bjarnason er í sömu stöðu og Emil en hann komst að starfslokum við Aston Villa nú í sumar. Hann hefur fengið tilboð sem var nærri því búið að ganga frá. „Ég var kominn með samning á borðið og það var klárt en það gekk ekki upp og það er sérstök staða en ég geri mitt besta eins og alltaf,“ en öll einbeiting Birkis er nú á landsleikina. „Ég hugsa ekkert meira út í það fyrr en eftir leikina og svo sjáum við til hvað gerist.“ Hann er þó vongóður um að finna sér nýtt félag eftir landsleikina. „Já, ég verð ekki atvinnulaus. Ég er viss um það.“
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Fleiri fréttir Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Messi kominn í 900 mörk Sögulegur samningur Víkinga Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Blindröðun í beinni: Sígó í stúkunni og sjúkur snúningur Kane Deilan leyst og spilað í Boston Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Ljóstruðu óvart upp um óvænt val Heimis Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Missti næstum því fingur á móti Liverpool „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Sjá meira