Topplið hefur ekki tapað stærra í meira en sjö ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2019 15:30 KR hafa tapað síðustu 125 mínútum á móti HK í sumar með markatölunni 1-6. Vísir/Bára
KR-ingar steinlágu á móti nýliðum HK-inga í 16. umferð Pepsi Max deildar karla í gærkvöldi. KR var með tíu stiga forystu fyrir leikinn en eftir þennan skell þá eru Blikar nú „aðeins“ sjö stigum á eftir. Það færðist því örlítið meiri spenna í titilbaráttuna í fyrsta sinn í langan tíma. Þetta þriggja marka tap hjá toppliði er langt frá því að vera daglegt brauð í efstu deild karla. Það þarf þannig að fara sjö ár aftur í tímann til að finna stærra tap hjá toppliði deildarinnar. ÍA tapaði 4-0 á móti ÍBV í 7. umferðinni sumarið 2012 en fyrir leikinn voru Skagamenn með eins stigs forskot á toppi deildarinnar. Daninn Christian Olsen skoraði þrennu fyrir Eyjamenn í þessum leik og ÍA missti toppsætið til FH-inga sem urðu svo Íslandsmeistarar um haustið. Þrjú önnur topplið hafa tapað með þriggja marka mun á þessum sjö árum sem liðin eru frá skelli toppliðs Skagamanna á heimavelli sínum 15. júní 2012. Blikar töpuðu 4-1 út í Eyjum í 2. umferðinni 2013, KR tapaði 3-0 á móti Blikum í leik sem var frestað langt fram eftir sumri árið 2013 og Stjarnan tapaði 3-0 á móti FH í 6. umferðinni 2017. KR-ingar bætast nú í hópinn eftir 4-1 skell á móti HK í Kórnum í gær. Það er athyglisvert að KR-ingar komust í 3-0 á fyrstu 55 mínútunum í fyrri leik sínum á móti HK sem fram fór 20. maí. Síðan þá hafa HK skoraði sex mörk gegn einu á móti toppliði Pepsi Max deildarinnar. HK-ingar skoruðu tvö mörk og minnkuðu muninn í 3-2 á síðustu 35 mínútum á KR-vellinum og unnu svo 90 mínúturnar í Kórnum í gær 4-1.Stærstu töp toppliðanna frá og með árinu 2011: -4 ÍA á móti ÍBV í 7. umferð 2012 (0-4)-3 KR á móti HK í 16. umferð 2019 (1-4) -3 Breiðablik á móti ÍBV í 2. umferð 2013 (1-4) -3 KR á móti Breiðabliki í 16. umferð 2013, var frestað (0-3) -3 Stjarnan á móti FH í 6. umferð 2017 (0-3)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Sport Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Dagur hringaður seint og þurfti að hætta Sport Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira