Fyrsti Reykjanesbæjarslagurinn í næstum því sextán ár í beinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2019 15:30 Keflvíkingar hafa aldrei tapað deildarleik á móti Njarðvík. Vísir/Ernir
Það þekkja flestir vel viðureignir Keflavíkur og Njarðvíkur í körfuboltanum enda er sú viðureign jafnan kölluð „El Clasico“ íslenska körfuboltans. Í kvöld mætast Reykjanesbæjarliðin Keflavík og Njarðvík hins vegar í fjórðu umferð Inkasso-deildar karla í fótbolta. Körfuboltaliðin mætast á hverju ári en það er meira en einn og hálfur áratugur síðan að fótboltalið félaganna mættust í deildarleik. Bæði liðin hafa byrjað tímabilið mjög vel. Keflavík er með fullt hús (9 stig) eftir þrjá leiki og Njarðvíkingar hafa náð í sex stig af níu mögulegum. Leikur kvöldsins fer fram á Rafholtsvelli þeirra Njarðvíkinga, hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Keflvíkingar hafa unnið þrjá góða sigra á á Fram (2-1), Magna (3-1) og Aftureldingu (5-0) en tveir af þeim hafa verið á heimavelli. Njarðvíkingar töpuðu eina heimaleiknum sínum á móti Þór Akureyri (0-2) en unnu útileikina á móti Reykjavíkurfélögunum Þrótti (3-2) og Leikni (2-1). Þetta er fyrsti deildarleikurinn á milli félaganna í næstum því sextán ár eða síðan að liðin mættust í 1. deild karla í september 2003. Síðan þá hafa liðin ekki verið í sömu í deild, Keflvíkingar oftast í úrvalsdeildinni en Njarðvíkingar í mest í C-deildinni. Keflavík vann báða leiki liðanna í 1. deildinni 2003, 2-0 í Njarðvík og 5-2 á heimavelli sínum. Þetta eru einu deildarleikir liðanna og Njarðvík hefur því aldrei náð í stig á móti nágrönnum sínum í fótboltanum.
Íslenski boltinn Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira