Óli vann Óla þriðja árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2019 13:45 Ólafur Jóhannesson og Óli Stefán Flóventsson. Samsett/Vísir
Óli Stefán Flóventsson stýrði KA-mönnum til sigurs á Íslandsmeisturum Vals í annarri umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu í gær. Þetta er þriðja árið í röð sem Óli Stefán vinnur heimaleik á móti Ólafi Jóhannessyni og lærisveinum hans í Val. Valsmenn hafa aðeins tapað fimm deildarleikjum undanfarin þrjú tímabil og þrír þeirra, eða 60 prósent, hafa komið í leikjum á móti liðum undir stjórn Óla Stefáns. FH-þjálfararnir Heimir Guðjónsson (2017) og Ólafur Kristjánsson (2018) tókst líka að vinna Val einu sinni hvor. Ólafur Kristjánsson stýrði reyndar FH til sigurs á móti Val á Hlíðarenda í bikarnum í síðustu viku en fyrir ári síðan var það Ágúst Þór Gylfason og lærisveinar hans í Breiðabliki sem slógu Valsmenn út úr bikarkeppninni. Markakóngurinn Andri Rúnar Bjarnason skoraði síðan sigurmarkið á móti Val fyrir tveimur árum þegar hann nýtti sér misskilning milli markvarðar og varnarmanns Valsliðsins. Hallgrímur Mar Steingrímsson tryggði KA sigurinn á Akureyri í gær með því að skora eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 54. mínútu leiksins en í fyrra kom sigurmarkið beint úr aukaspyrnu þremur mínútum fyrir leikslok. Valsmenn geta huggað sig við það að öll þessi töp á móti liðum Óla Stefáns hafa komið snemma á tímabilinu og bæði hin tímabilin tryggði Valsliðið sér svo Íslandsmeistaratitilinn um haustið. Það má því segja að tap á móti Óla Stefáni boði gott.Heimaleikir Óla Stefáns Flóventssonar á móti Ólafi Jóhannessyni 2017-2019:2017 - 5. umferð Grindavík vann 1-0 sigur á Val Sigurmarkið: Andri Rúnar Bjarnason á 50. mínútu2018 - 5. umferð Grindavík vann 2-1 sigur á Val Sigurmarkið: Jose Enrique beint úr aukaspyrnu á 87. mínútu2019 - 2. umferð KA vann 1-0 sigur á Val Sigurmarkið: Hallgrímur Mar Steingrímsson úr víti á 54. mínútuÞjálfarar sem hafa unnið lærisveina Ólafs Jóhannssonar í deildinni frá 2017: 3 sigrar - Óli Stefán Flóventsson (Grindavík og KA) 1 sigur - Heimir Guðjónsson (FH) 1 sigur - Ólafur Kristjánsson (FH)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira