Telur Bandaríkjamenn vilja læsa Assange inni og henda lyklunum Jakob Bjarnar og Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifa 11. apríl 2019 15:01 Kristinn Hrafnsson segir framsalskröfuna fáránlega og telur fisk liggja þar undir steini. Víst sé að ef Bandaríkjamenn ná að setja klærnar í Assange þá muni hann fá að dúsa lengi í steininum.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir handtökuna á Julian Assange vera í boði forseta Ekvador. Hann hleypti lögregluna inn í sendiráðið þar sem Assagne var handtekinn. Eins og Vísir hefur greint ítarlega frá var Julian Assange, stofnandi Wikileaks, handtekinn í morgun. Hann var færður á lögreglustöð þar sem honum var birt ákæra og framsalskrafa frá Bandaríkjastjórn. Fáránleg framsalskrafa Fréttastofa ræddi við Kristinn nú síðdegis og hann segir framsalskröfuna byggja á brotum sem Bandaríkjastjórn telur Assagne hafa framið árið 2010 með því að hafa verið í samsæri við Chelsea Manning um að birtingu upplýsinga sem Wikileaks birti það ár. „Að sjálfsögðu er þetta fáránleg ástæða til að fá manninn til Bandaríkjanna. Brot hans er það eitt að sinna blaðamennsku eins og ég hef margoft tekið fram. Brot hans er það eitt að stuðla að birtingu gagna sem snúa að hernaðarrekstri Bandaríkjanna í Afganistan og Írak, uppljóstra um stríðsglæpi og aðra skelfingu sem við kemur þeim stríðsrekstri. Að sjálfsögðu verður barist gegn þessu framsali í réttarsölum hér á Bretlandi. Það getur tekið tíma og vænta má þess að hann muni dvelja í fangelsi meðan það er útkljáð.“ Julian Assange eftir handtökuna fyrr í morgun.Vísir/EPA Kristinn segir augljóst að þarna sé verið að leggja fram mun minna mál en það sem hefur birst í allskyns réttargögnum í tengslum við ásakanir Bandaríkjastjórnar á hendur Assange. „Þar sem talað hefur verið um brot á njósnalöggjöf frá 1918 sem varðar allt að dauðarefsingu. Og önnur brot sem varða áratuga fangelsi. Það er okkar mat að þarna er sé um tylliástæðu að ræða þar sem farið er fram á framsal á grundvelli minni brota. Til að auka líkur á því að hann verði framseldur. Og allar líkur á því að þegar hann kemur til Bandaríkjanna, ef af því verður, þá verður bætt á þá ákæru sem hægt er að gera. Og hann dæmdur í fangelsi í áratugi.“ Telur um pólitískar ofsóknir að ræða Kristinn segir fyrir liggja að í vændum sé erfiður slagur. hann telur þetta mál af pólitískum toga. „Þetta er pólitísk framsalskrafa vegna pólitískra ofsókna. Við höfum haldi fram að það hafi verið undirliggjandi í öll þessi ár og nú birtist það. Gegn því verður að sjálfsögðu barist. Þetta eru ofsóknir gegn blaðamanni. Fyrir það að sinna sínu starfi sem blaðamaður. Það sem Julian Assange, Wikileaks, ég sjálfur og aðrir sem komu að þessum málum gerðum var ekki annað en sinna starfi blaðamennskunnar. Þessi gögn voru birt í samstarfi við fjölmiðla um allan heim. New York Times, Guardian, Der Spiegel og RÚV.“ Einsýnt er, að mati Kristins, að þetta muni geta haft afar alvarlegar afleiðingar í för með sér, í því sem snýr að blaðamennsku á heimsvísu. „Ef hægt er að láta það ganga eftir að Bandaríkjastjórn geti krafist framsals á erlendum ríkisborgurum frá 3. landi getur hver einasti blaðamaður átt slíkt yfir höfði sér. Og sett það fordæmi að önnur ríki grípi til sambærilegra aðgerða. Þarna er verið að vega að starfi blaðamanna og frjálsri fjölmiðla í heiminum.“ Kristinn telur þetta svartan dag í sögu frjálsra fjölmiðla.
Bandaríkin Ekvador Fjölmiðlar WikiLeaks Mál Julians Assange Tengdar fréttir Munu berjast gegn því að Assange verði framseldur með öllum tiltækum ráðum Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður, segist vera í áfalli vegna nýjustu vendinga í máli Julians Assange. 11. apríl 2019 11:11 Julian Assange handtekinn Julian Assange, stofnandi Wikileaks, var handtekinn í morgun í sendiráði Ekvadors í London. Þar hefur hann dvalið í sjö ár. Þetta herma breskir miðlar eftir lögreglunni í Bretlandi. 11. apríl 2019 09:44 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Munu berjast gegn því að Assange verði framseldur með öllum tiltækum ráðum Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður, segist vera í áfalli vegna nýjustu vendinga í máli Julians Assange. 11. apríl 2019 11:11
Julian Assange handtekinn Julian Assange, stofnandi Wikileaks, var handtekinn í morgun í sendiráði Ekvadors í London. Þar hefur hann dvalið í sjö ár. Þetta herma breskir miðlar eftir lögreglunni í Bretlandi. 11. apríl 2019 09:44