Fallið niður um 22 sæti á styrkleikalistanum á rúmu ári Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2019 09:03 Íslenska liðið stillir sér upp fyrir leikinn gegn Frakklandi á Stade de France. vísir/getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fellur niður um tvö sæti á styrkleikalista FIFA. Ísland er núna í 40. sæti listans. Íslendingar hafa hrapað niður styrkleikalistann síðasta rúma árið. Í febrúar 2018 var Ísland í 18. sæti listans og hefur aldrei verið ofar. Síðan hefur staða íslenska liðsins á styrkleikalistanum versnað til muna. Í síðasta mánuði vann Ísland 0-2 sigur á Andorra í undankeppni EM 2020 en tapaði 4-0 fyrir heimsmeisturum Frakklands. Íslendingar hafa aðeins unnið einn af síðustu 17 leikjum sínum. Engar breytingar eru á toppi listans. Belgar eru enn efstir, Frakkar í 2. sæti og Brasilíumenn í því þriðja. Englendingar hoppa upp um eitt sæti og í það fjórða. Tvær Norðurlandaþjóðir eru fyrir ofan Ísland á styrkleikalistanum. Danmörk er í 10. sæti og Svíþjóð í því fjórtánda. Norðmennirnir hans Lars Lagerbäck falla niður um tvö sæti og eru í því fimmtugasta. Íslendingar eru þriðju efstir af þeim liðum sem eru í þeirra riðli í undankeppni EM 2020. Eins og áður sagði eru Frakkar í 2. sæti listans. Tyrkir fara upp fyrir Íslendinga og eru í 39. sætinu. Albanía er í 62. sæti, Andorra í 134. sæti og Moldóva í 171. sæti.Styrkleikalisti FIFA (efstu tíu): 1. Belgía 2. Frakkland 3. Brasilía 4. England 5. Króatía 6. Úrúgvæ 7. Portúgal 8. Sviss 9. Spánn 10. DanmörkListann í heild sinni má sjá með því að smella hér.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira