KR og Valur spila um sæti í úrslitaleiknum á fimmtudagskvöldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2019 18:00 Valsmenn urðu Reykjavíkurmeistarar 2017. vísir/vilhelm
Undanúrslit Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu fara fram á fimmtudaginn kemur en báðir leikirnir verða þá spilaðir í Egilshöllinni. Fyrst mætast Fjölnir og Fylkir klukkan 19:00 og svo spila erkifjendurnir KR og Valur klukkan 21:00. Þar ráðast því úrslitin ekki fyrr en rétt fyrir ellefu. Leikirnir verða ekki framlengdir því ef að það verður jafnt eftir venjulegan leiktíma í leikjunum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Úrslitaleikurinn fer svo fram mánudaginn 4. febrúar kl. 20:00 og verður hann einnig spilaður í Egilshöll. Fjölnismenn eiga titil að verja en þeir unnu 3-2 sigur á Fylki í úrslitaleiknum í fyrra. Liðin mætast aftur núna en bara í undanúrslitaleiknum. KR tapaði 1-0 á móti Fylki í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í fyrra en Valsmenn komust þá ekki upp úr riðlinum. Valsmenn unnu aftur á móti Reykjavíkurmótið fyrir tveimur árum á sjálfsmarki Fjölnismanna. KR-ingar urðu síðast Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu árið 2010 þegar þeir unnu mótið annað árið í röð. KR-ingar hafa 36 sinnum orðið Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu eða oftast allra Reykjavikurliða. Framarar hafa unnið mótið 27 sinnum, síðast árið 2014. Valsmenn unnu Reykjavíkurmeistarartitilinn í 22. skiptið fyrir tveimur árum.
Íslenski boltinn Mest lesið Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Golf Rekinn eftir einn leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sjá meira