Persónuupplýsingum norður-kóreskra flóttamanna stolið Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2018 11:37 Norður-Gyeongsang-miðstöðin er ein 25 miðstöðva sem suður-kóresk yfirvöld starfrækja til að aðstoða þá sem flúið hafa Norður-Kóreu og komist suður yfir landamærin, við að aðlagast nýju samfélagi. Getty
Persónuupplýsingum um þúsund Norður-Kóreumanna sem flúið hafa land hefur verið stolið eftir að ráðist var á tölvukerfi flóttamannamiðstöðvar í Suður-Kóreu. Frá þessu greinir ráðuneyti sameiningarmála í Suður-Kóreu. Í frétt BBC segir að vírus hafi fundist í einkatölvu í miðstöðinni. Lekinn er sagður fyrsti stóri lekinn þegar kemur að persónuupplýsingum norður-kóreskra flóttamanna. Ekki hafa verið gefnar upplýsingar um hver stóð að baki árásinni. Norður-Gyeongsang-miðstöðin er ein 25 miðstöðva sem suður-kóresk yfirvöld starfrækja til að aðstoða þá sem flúið hafa Norður-Kóreu og komist suður yfir landamærin, við að aðlagast nýju samfélagi. Telja flóttamennirnir um 32 þúsund manns. Alls hafa 997 norður-kóreskir flóttamenn nú fengið skilaboð um að persónuupplýsingum þeirra hafi verið stolið – nöfn, fæðingardagar og heimilisföng. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif þetta kann að hafa, þó að fréttaskýrendur segja að þetta kunni að skapa hættu fyrir fjölskyldur flóttamannanna sem enn búa í Norður-Kóreu. Yfirvöld í Norður-Kóreu vita ekki um alla þá sem flúið hafa landið og hafa margir þeirra verið skráðir sem „horfnir“ og aðrir látnir.
Norður-Kórea Tölvuárásir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira