Formaður Eflingar les Sirrý pistilinn: „Þessi fyrirlitlega manneskja ásakar mig um óheiðarleika og glæpaeðli“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. nóvember 2018 12:52 Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur Sirrý Halllgrímsdóttur heyra það í pistli sem hún skrifaði á Facebooksíðu sína í dag. Vísir/Vilhelm „
Enn og aftur er viðbjóðslegur áróður um mig og Eflingu borinn inn á heimili fólks með Fréttablaðinu.“ Á þessum orðum hefst pistill Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, um bakþankapistil Sirrýjar Hallgrímsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanns Illuga Gunnarssonar sem nefnist „Byltingin étur“, og birtist í Fréttablaðinu í dag. Í bakþankapistli Sirrýjar sendi hún nýrri forystu verkalýðshreyfingarinnar tóninn og sakaði hana um að vera bæði ókurteis og að vinna á móti þeim sem verst hafa það því hún telji að þær launahækkanir sem verkalýðshreyfingin fer fram á leiði til verðbólgu. Þá sagði hún að Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, sé andlegur leiðtogi nýrrar forystu verkalýðshreyfingarinnar. „Nú er Gunnar Smári búinn að finna nýjan sjóð, verkalýðsfélagið Efling situr á 12 milljörðum sem nýta má til ýmissa verka. Það þurfti bara að senda gjaldkerann í veikindaleyfi, hún virtist ekki skilja fínni blæbrigði byltingarinnar,“ skrifaði Sirrý.Segir Sirrý hafa sakað sig um þjófnað Sólveig Anna segir að af skrifum Sirrýjar mætti greina alvarlegar ásakanir: „Í raun er hún að ásaka mig um þjófnað; að hin raunverulega ástæða fyrir því að ég hafi gefið kost á mér sem formaður Eflingar hafi verið til að svíkja og pretta og stela. Það er ótrúlegt að þurfa að sitja undir uppspuna og deleríngum í fólki með skerta siðferðiskennd, en ég segi aftur: Hér fáum við ótrúlegt tækifæri til að upplifa hvernig borgarastéttin tjúllast þegar að henni er sótt og þegar fólk ákveður að hætta að bugta sig og beygja fyrir mannfjandsamlegum efnahagslögmálum hennar.“Sirry Hallgrímsdóttir skrifaði bakþankapistil sem birtist í Fréttablaðinu í dag.Hún segir að í bakþankapistlinum opinberist allt í senn viljinn til að ljúga, hræða og til að leita allra leiða til að „sabótera“ baráttu fólks fyrir efnahagslegu réttlæti. Segir Sirrý etja saman tveimur stéttum Þá þykir Sólveigu ekki fínt að etja saman stétt verka-og láglaunafólks og háskólamenntaðra en í bakþankapistli Sirrýjar stakk hún upp á því að fréttamenn krefji ljósmæður svara um það hvort þær séu sáttar við að menntun þeirra sé ekki metin til launa. Sólveig segir að þetta sé aumkunarvert skítkast: „Ljósmæður, eins og annað eðlilegt fólk með eðlilega siðferðiskennd í íslensku samfélagi, munu standa með okkur í baráttunni. Af því að þær, eins og allt eðlilega innréttað fólk, gera sér grein fyrir því að gott og mannvænt samfélag byggist upp á því að fólk hafi það gott, að fólk lifi við öryggi, að fólk sleppi við vinnu-þrælkun...“ Furðaði sig á tilgangi pistilsins „Í alvöru talað: Hvernig dirfist þessi kona að reyna að ata mig aur? Hvernig dirfist hún að reyna að hræða fólk sem starfar á íslenskum vinnumarkaði til hlýðni? Hvernig dirfist hún að reyna að láta eins og ég hafi gerst sek um einhvern glæp?“ Sólveig veltir fyrir sér svari við eigin spurningu: „Sennilegasta útskýringin er sú að í þeirri veröld sem hún byggir, þeirri veröld sem félagar hennar byggja þykir ekkert sjálfsagðara en að ásælast sjóði og gera hvað sem er til að komast að þeim. Í þeirri veröld þykir ekkert sjálfsagðara en að láta fégræðgina stýra öllum sínum gjörðum. Í þeirri veröld þykir ekkert tiltökumál að stunda fyrirtækjagripdeildir, skattsvik, fjárplógsstarfsemi og síðast en ekki síst þykir í þeirri veröld ekkert sjálfsagðar en að kokka upp eitt stórfenglegasta bankahrun mannkynssögunnar með einbeittum brotavilja og einbeittu skeytingarleysi fyrir hagsmunum almennings.“Sólveig sendi Herði Ægissyni, ritstjóra Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins, einnig tóninn fyrir að hafa sagt hina nýju forystu verkalýðshreyfingarinnar hafa í frammi sturlaðar kröfur fyrir komandi kjarabaráttu. Þetta sagði hann í leiðarapistli undir yfirskriftinni „Stærsta ógnin“.
Tengdar fréttir Ritstjóri Stundarinnar kemur ritstjóra Markaðarins til varnar Segir Jón Trausti að gera verði greinarmun á því að fólk sé í hagsmunaárekstri og því að það hafi skoðanir sem stangast á við okkar, eða þegar okkur þyki það vega ómaklega að okkur. 22. október 2018 15:39 Formaður Eflingar: „Megi þá helvítis byltingin lifa“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur Hörð Ægisson, ritstjóra Markaðarins, heyra það í ítarlegum pistli sem hún skrifaði. 21. október 2018 22:02 Bylting étur Andlegur leiðtogi þessarar hreyfingar virðist vera Gunnar Smári Egilsson sem áður hafði nokkuð óhindraðan aðgang að sjóðum auðmanna. Nú er Gunnar Smári búinn að finna nýjan sjóð, verkalýðsfélagið Efling situr á 12 milljörðum sem nýta má til ýmissa verka. Það þurfti bara að senda gjaldkerann í veikindaleyfi, hún virtist ekki skilja fínni blæbrigði byltingarinnar. 3. nóvember 2018 09:30 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Ritstjóri Stundarinnar kemur ritstjóra Markaðarins til varnar Segir Jón Trausti að gera verði greinarmun á því að fólk sé í hagsmunaárekstri og því að það hafi skoðanir sem stangast á við okkar, eða þegar okkur þyki það vega ómaklega að okkur. 22. október 2018 15:39
Formaður Eflingar: „Megi þá helvítis byltingin lifa“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur Hörð Ægisson, ritstjóra Markaðarins, heyra það í ítarlegum pistli sem hún skrifaði. 21. október 2018 22:02
Bylting étur Andlegur leiðtogi þessarar hreyfingar virðist vera Gunnar Smári Egilsson sem áður hafði nokkuð óhindraðan aðgang að sjóðum auðmanna. Nú er Gunnar Smári búinn að finna nýjan sjóð, verkalýðsfélagið Efling situr á 12 milljörðum sem nýta má til ýmissa verka. Það þurfti bara að senda gjaldkerann í veikindaleyfi, hún virtist ekki skilja fínni blæbrigði byltingarinnar. 3. nóvember 2018 09:30