Hera allt í öllu í nýrri stiklu úr stórmynd Peter Jackson Stefán Árni Pálsson skrifar 2. október 2018 13:30 Hera leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Mortal Engines.
Hera Hilmarsdóttir er í aðalhlutverki í nýjustu stórmynd Peter Jackson sem væntanleg er síðar á árinu. Í nótt kom út ný stikla úr myndinni þar sem Hera fer greinilega á kostum. Myndin ber nafnið Mortal Engines og kemur í kvikmyndahús 14. desember hér á landi. Er hún nýjasta afurð Jackson sem best er þekktur fyrir Lord of the Rings myndir sínar.Sjá einnig: Var óviss um að hún væri nógu góð fyrir Ben Kingsley Mortal Engines segir frá fjarlægri framtíð þar sem jarðarbúar hafast við á því litla sem eftir er af jörðinni vegna mikilla hamfara. Mannfólkið hefur þar náð að aðlagast þessum hrikalegu aðstæðum.Leikur Hera hlutverk Hester Shaw í myndinni en með önnur hlutverk fara Hugo Weaving og Stephen Lang. Leikstjóri er Christian Rivers, náinn samstarfsmaður Jackson, sem framleiðir myndina. Hér að neðan má sjá stikluna nýju en þar er karakter Heru Hilmarsdóttur sérstaklega til umfjöllunar.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Lífið „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Þorgerður brák grafin úr gleymsku Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Fleiri fréttir Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira