Sjö bíla árekstur á Bústaðavegi við Flugvallarveg Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. september 2018 14:01 Frá vettvangi á öðrum tímanum í dag. Mynd/Þórarinn Fannar Guðmundsson
Sjö bíla árekstur varð á mótum Flugvallarvegar og Bústaðavegar á öðrum tímanum í dag. Fjórir voru fluttir á slysadeild, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg. Þrír sjúkrabílar og dælubíll, auk lögreglubíla, voru sendir á vettvang þegar útkallið barst. Sjö bílar skemmdust við áreksturinn. Þá hefur Bústaðavegi verið lokað í austurátt á meðan viðbragðsaðilar vinna á vettvangi. Miklar umferðartafir eru í kringum slysstað. Þá hefur beygjuakrein frá Miklubraut upp á Bústaðaveg einnig verið lokað.Uppfært klukkan 14:25: Búið er að draga alla bílana af slysstað nema einn en að sögn varðstjóra urðu töluverðar skemmdir á nokkrum bílanna. Eins og áður sagði lentu sjö bifreiðar í árekstrinum. Enn er lokað fyrir umferð um Bústaðaveg í austurátt og viðbragðsaðilar starfa á vettvangi. Ekki var hægt að segja til um það á þriðja tímanum hvenær þeirri vinnu yrði lokið og þá ekki heldur hvenær opnað yrði aftur fyrir umferð á svæðinu.Uppfært klukkan 15:40: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er búið að opna fyrir alla umferð um Bústaðaveg.Lögregla hefur lokað beygjuakgrein upp á Bústaðaveg frá Miklubraut.Vísir/Sunna Kristín
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira