Leita manns í tengslum við morðið á hinum ellefu ára Nicky Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. ágúst 2018 14:46 Nicky Verstappen var myrtur árið 1998. Mynd/Hollenska lögreglan
Lögregla í Hollandi leitar nú manns sem grunaður er um aðild að morðinu á hinum ellefu ára gamla Nicky Verstappen fyrir tuttugu árum. Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi í hollensku borginni Maastricht í dag. Verstappen var í sumarbúðum þegar hann hvarf úr tjaldi sínu í ágúst árið 1998. Lík hans fannst degi síðar.Ekkert hefur spurst til Jos Brech síðan í febrúar.Mynd/hollenska lögreglanLögregluyfirvöld lýstu í dag eftir hinum 55 ára Jos Brech sem búsettur var í nágrenni sumarbúðanna þegar Verstappen var myrtur. Brech er grunaður um aðild að málinu en ekkert hefur til hans spurst í nokkra mánuði. Talið er að Brech sé í felum en hann hafði síðast samband við fjölskyldu sína í febrúar og sagðist þá vera í Frakklandi. Morðið á Verstappen vakti mikinn óhug í Hollandi á sínum tíma. Vísbendingar voru af afar skornum skammti, utan erfðaefnis ókunnugs karlmanns sem fannst á fötum drengsins. Í kjölfarið hrinti lögregla af stað umfangsmestu DNA-rannsókn í sögu Hollands þar sem tekin voru sýni úr fjórtán þúsund karlmönnum. Brech var ekki einn þeirra.Bertie Verstappen, móðir Nicky Verstappen, á blaðamannafundinum í hollensku borginni Maastricht í dag.Vísir/EPAEins og áður sagði bjó Brech í nágrenni sumarbúðanna árið 1998. Í gögnum málsins kemur fram að hann hafi gengið fram hjá vettvangi morðsins þegar rannsókn lögreglu stóð sem hæst, nokkrum dögum eftir að lík Verstappen fannst. Brech var yfirheyrður vegna morðsins en lögregla hafði aðeins talið hann saklausan vegfaranda. Við eftirgrennslan lögreglu í apríl síðastliðnum kom í ljós að erfðaefnið á fötum Versthappen var úr Brech. Á blaðamannafundi í dag var tilkynnt um að hann væri nú grunaður um aðild að morðinu en um er að ræða fyrstu vendingu í málinu svo árum skiptir.
Holland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira