Ellefu ára drengur sogaðist ofan í holræsi en bjargaðist Samúel Karl Ólason skrifar 29. ágúst 2018 21:30 Mikil rigning hefur leitt til flóða í Wisconsin. Vísir/AP
Ellefu ára dreng var bjargað á merkilegan hátt í gær eftir að hann hafði sogast niður í holræsakerfi í Wisconsin í Bandaríkjunum. Slökkviliðsmaður sá fingur drengsins þar sem hann hafði stungið honum í gegnum lítið gat á loki að holræsi sem slökkviliðsmaðurinn stóð á. Þar hafði drengurinn fundið smá loft og hékk hann í stiga. Drengurinn hafði verið að leika sér með vinum sínum í fráveituskurði þegar hann sogaðist ofan í holræsakerfið vegna mikilla rigninga. Þegar björgunarmenn bar að garði var þar maður sem hélt í drenginn og reyndi að koma í veg fyrir að hann myndi sogast niður. Hann missti þó takið og yfirmaður slökkviliðsins í bænum Harrison sagði styrk vatnsins hafa verið svo mikinn að maðurinn hefði mögulega geta sogast niður með drengnum. Slökkviliðsmennirnir voru að reyna að átta sig á því hvert drengurinn gæti borist með vatninu þegar einn þeirra sá fingur hans.Samkvæmt AP fréttaveitunni var drengurinn í góðu ástandi þegar hann var fluttur á sjúkrahús. „Ég þakka bara guði fyrir að hann hafi verið á lífi og geta tórað svo lengi,“ sagði einn slökkviliðsmannanna við AP. „Þetta hefði geta farið á milljón mismunandi vegu en þessi eina leið virkaði honum í vil.“ Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í hluta Wisconsin vegna flóða.
Bandaríkin Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira