Stúlkurnar sem kærðu lögreglumanninn stíga í ræðustól á Druslugöngunni Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 27. júlí 2018 13:21 Kiana Sif Limehouse og Helga Elín Herleifsdóttir eru tvær þriggja kvenna sem kærðu lögreglufulltrúa hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/Þorri Líndal
Kiana Sif Limehouse og Helga Elín Herleifsdóttir, sem hvor í sínu lagi, lögðu fram kæru á hendur lögreglumanni hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ætla að brýna raustina í ræðustól á Austurvelli að aflokinni Druslugöngu. Gangan er orðinn árviss viðburður og er haldin á laugardaginn næsta í sjöunda sinn. Um er að ræða samstöðugöngu með þolendum kynferðislegs ofbeldis. Kiana Sif og Helga Elín hafa báðar prýtt forsíðu Mannlífs, sem greindi fyrst frá málinu, en í viðtalinu stigu konurnar ungu fram og greindu frá meintum kynferðisbrotum mannsins en málunum var vísað frá og lögreglumaðurinn hélt starfi sínu. Þær hafa gagnrýnt harðlega rannsókn málsins og segja réttarkerfið hafa brugðist sér.Kiana og Helga hafa gagnrýnt rannsókn málsins og telja að betur hefði mátt standa að henni.Helga ElínSjá fréttir Mannlífs þar sem Kiana og Helga Elín stíga fram:„Kvöldið áður en ég sagði frá misnotaði hann mig í síðasta skiptið“„Ríkislögreglustjóri brást dóttur minni“ Auk þeirra Kiönu og Helgu stendur til að framhaldshópur frá Stígamótum haldi ræður. Þá mun María Rut Kristinsdóttir, fyrrverandi talskona Druslugöngunnar ávarpa samkomuna. María Rut leiddi áður samráðshóp ráðherra um meðferð kynferðisbrota innan réttavörslukerfisins. Á síðu viðburðarins segir að Druslugangan sé allra: „Hún er vopn okkar gegn óréttlæti og ofbeldi. Sama hvort þú sért þolandi, aðstandandi eða einfaldlega manneskja sem sættir sig ekki við samfélag sem með þögn sinni og aðgerðarleysi samþykkir kynferðisofbeldi.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira