Kartöflurnar seinar á ferðinni í ár Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. júlí 2018 20:00
Nýjar íslenskar kartöflur eru nú fáanlegar í verslunum en uppskeran er heldur seinna á ferðinni í ár en venjulega. Tíðarfarið gæti haft áhrif á reksturinn að sögn kartöflubónda í Þykkvabænum. Guðni Þór Guðjónsson og Lilja Guðnadóttir eru kartöflubændur í Hrauk í Þykkvabæ og rækta kartöflur í um þrjátíu hektara landi. „Við byrjuðum hérna á fimmtudaginn en það var nú byrjað hérna í Þykkvabænum 23. júli. Það er að minnsta kosti tíu dögum seinna en hefur verið undanfarin ár að minnsta kosti,“ segir Guðni. Allir þurfa að leggja hendur á plóg þegar kartöflurnar eru teknar upp en þrjú börn þeirra Guðna og Lilju eru engir nýgræðingar í kartöflugörðunum. Eftir eina til tvær vikur verður hægt að taka upp gullauga en þær rauðu eru tilbúnar síðast. Guðni er þó mátulega bjartsýnn í ár en óheppilegt tíðarfar í sumar gæti komið niður á rekstrinum. „Það er búin að vera þannig tíð, ekki viðrað vel á okkur,“ segir Guðni, en það seinkar uppskerunni. „Við vitum svo sem ekki hvernig það endar en það lítur kannski ekkert allt of vel út eins og staðan er í dag.“
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Sjá meira