Ró yfir viðræðum í Ísafjarðarbæ Birgir Olgeirsson skrifar 5. júní 2018 13:54 Í-listinn missti meirihluta í kosningunum og eru Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn nú í meirihlutaviðræðum. Vísir/Egill
Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ tóku því rólega yfir helgina en fulltrúar þessara flokka hafa átt í formlegum viðræðum um myndun meirihluta í bæjarstjórn sveitarfélagsins. Marzellíus Sveinbjörnsson er oddviti Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ en hann segir helgina hafa verið nýtta til annarra verka. Engar viðræður áttu sér því stað yfir helgina en Marzellíus segir flokkana hafa um fimmtán daga frá kosningum og fram að fyrsta bæjarstjórnarfundi til að mynda meirihluta. Spurður hvað flokkarnir ræði helst segir Marzellíus samstarfið í heild sinni undir, bæði málefnasamningurinn og hvernig verður raðað í nefndir. „Bara þetta hefðbundna sem allir flokkar ræða,“ segir Marzellíus. Hann segir að verði af meirihlutasamstarfi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins þá verður staða bæjarstjóra auglýst, líkt og Framsóknarmenn lofuðu fyrir kosningar. Marzellíus segir Sjálfstæðismenn hafa fallist á þá kröfu áður en viðræðurnar hófust. „Það er það eina sem var ákveðið þegar við gengum að borðinu,“ segir Marzellíus sem vonast til þess að skýrari mynd verði komin á viðræðurnar fyrir helgi.
Kosningar 2018 Tengdar fréttir Framsókn á Ísafirði ræðir meirihluta með Sjálfstæðisflokki Marzellíus Sveinbjörnsson oddviti framsóknarmanna í bænum segir að ákveðið hafi verið í morgun að taka upp viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. 29. maí 2018 13:04 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Framsókn á Ísafirði ræðir meirihluta með Sjálfstæðisflokki Marzellíus Sveinbjörnsson oddviti framsóknarmanna í bænum segir að ákveðið hafi verið í morgun að taka upp viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. 29. maí 2018 13:04