Kallaði eftir árásum á Georg prins Samúel Karl Ólason skrifar 31. maí 2018 18:04 Teikning af Rashid, Vilhjálmur bretaprins og sonur hans Georg. Vísir/AP
Breti sem lýst hafði yfir hollustu við Íslamska ríkið hefur játað ýmis hryðjuverkabrot og þar á meðal að hafa kallað eftir árásum á hinn fjögurra ára gamla Georg prins. Hinn 32 ára gamli Husnain Rashid notaðist við samskiptaforritið Telegram til að fagna vel heppnuðum hryðjuverkaárásum í Bretlandi og hvetja til fleiri svokallaðra „Lone wolf“ árása. Þar að auki veitti hann ráð um notkun sprengja og hnífa og ætlaði hann sér að ferðast til Sýrlands og ganga til liðs við ISIS. Rashid hafði í fyrstu lýst yfir sakleysi sínu en hefur skipt um skoðun. Réttarhöldin yfir honum hófust þann 23. maí en Rashid játaði brot sín vegna óhyggjandi sannana gegn honum, samkvæmt tilkynningu frá ríkissaksóknara Bretlands.Meðal þess sem Rashid ráðlagði lesendum sínum að gera var að notast við eitur, bíla, og ýmis vopn. Hann stakk þar að auki upp á því að eitri yrði sprautað í ís í verslunum. Saksóknarinn Sue Hemming segir Rashid vera öfgamann sem hafi ekki einungis hvatt aðra til að gera árásir heldur hafi hann einnig ætlað sér að ferðast til Tyrklands og þaðan til Sýrlands og ganga til liðs við ISIS. „Hann reyndi að halda því fram að hann hefði ekki gert neitt ólöglegt en óhyggjandi sönnunargögn gegn honum fengu hann til að játa brot sín.“ Meðal þess sem Rashid birti á Telegram var mynd af hinum fjögurra ára gamla Georg og heimilisfang skóla hans með textanum: „Jafnvel konungsfjölskyldan verður ekki látin í friði“.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Sjá meira