Yfirbugaður af sérsveitinni eftir tilraun til vopnaðs ráns Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. apríl 2018 09:42 Sérsveitin var kölluð út á Akureyri í gærkvöldi. Vísir/Auðunn
Síðasti sólarhringur hefur verið annasamur hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Sérsveitin var kölluð út á Akureyri í gærkvöldi vegna tilraunar til ráns. Maður í annarlegu ástandi ógnaði starfsmanni á bar með tveimur hnífum, sinn í hvorri hendinni, og hótaði að skaða starfsmanninn ef hann fengi ekki peningana úr afgreiðslukassanum. Lögreglan var skammt frá þegar fólk fór að veifa til lögreglu og óska aðstoðar. Lögreglumenn ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra, sem staðsett er á norðurlandi eystra, yfirbuguðu manninn sem hafði ekki lagt frá sér hnífana þrátt fyrir ítrekuð fyrirmæli lögreglu um að leggja þá frá sér og otaði hann hnífunum í átt að lögreglumönnum. Engin meiðsl hlutust af samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Maðurinn var handtekinn og færður í fangaklefa. Á síðasta sólarhring tók lögreglan einnig 14 ökumenn fyrir of hraðan akstur og tvo fyrir að aka yfir á rauðu umferðarljósi. Tveir voru teknir fyrir vörslu fíkniefna, tveir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og einn grunaður um ölvun við akstur.
Lögreglumál Tengdar fréttir Margir stöðvaðir undir áhrifum fíkniefna Töluverður erill var hjá lögreglu í nótt. 7. apríl 2018 07:30 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira
Margir stöðvaðir undir áhrifum fíkniefna Töluverður erill var hjá lögreglu í nótt. 7. apríl 2018 07:30