Sigríður Jónsdóttir metin hæfust Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 23. febrúar 2018 10:15 Ásmundur Einar Daðason og Sigríður Jónsdóttir. Mynd/Velferðarráðuneytið
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing í velferðarráðuneytinu, til að fara með stjórn nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar á sviði félagsþjónustu. Samkvæmt frétt á vef Velferðarráðuneytisins er ákvörðun Ásmundar í samræmi við niðurstöðu ráðgefandi nefndar sem mat Sigríði hæfasta úr hópi umsækjanda. 22 einstaklingar sóttu um stöðuna.Áratuga reynsla Sigríður er með BA gráðu í almennum þjóðfélagsfræðum og framhaldsgráðu frá háskólanum í Manchester. Í umsögn hæfnisnefndar segir að Sigríður hafi varið starfsævi sinni innan félagsmálageirans, fyrst sem ráðgjafi innan félagsþjónustu og sérfræðingur en síðar sem millistjórnandi. Á þeim tíma hafi hún látið mikið til sín taka í rannsóknum og þróun gæðastarfs. Þá hafi hún starfað við undirbúning hinnar nýju stofnunar hjá velferðarráðuneytinu. „Sigríður hefur afar yfirgripsmikla þekkingu á starfssviði hinnar nýju stofnunar sem og á opinberri stjórnsýslu. Hún er reyndur stjórnandi og hefur djúpan skilning á tilgangi og hlutverki hinnar nýju stofnunar. Hún hefur áratuga reynslu af vinnu við upplýsingaöflun, gagnavinnslu, gæðamat og árangursmat og hefur skarpa framtíðarsýn fyrir hönd stofnunarinnar,“ segir meðal annars í umsögn hæfnisnefndarinnar.Efla stjórnsýslu félagsþjónustu Samkvæmt frétt Velferðarráðuneytisins mun nýja stofnunin annast stjórnsýslu og eftirlit með félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga. Undir félagsþjónustu sveitarfélaga heyrir meðal annars ýmis þjónusta sem snýr að börnum, fjölskyldum, fötluðu fólki, öldruðum og innflytjendum. Stefnt er að því að eftirlit með barnaverndarmálum sem nú er á hendi Barnaverndarstofu verði einnig á ábyrgð stofnunarinnar og er unnið að gerð lagafrumvarps þess efnis í velferðarráðuneytinu. „Ákvörðun um að fela þessi verkefni sérstakri stofnun byggist á tillögum nefndar sem ráðherra félagsmála skipaði árið 2014 með það að markmiði að styrkja undirstöður heildstæðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga og skilja með skýrum hætti á milli stjórnunar- og eftirlitshlutans annars vegar og veitingu þjónustunnar hins vegar.“ Nýja stofnunin er ráðuneytisstofnun og fer um skipulag hennar samkvæmt 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarráðuneytinu er ætlað er að hún taki til starfa innan fárra vikna.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira