Árelía Eydís skipuð formaður Jafnréttisráðs Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. febrúar 2018 17:25 Daníel E. Arnarsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Mynd/Velferðarráðuneytið
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað nýtt Jafnréttisráð samkvæmt lögum. Árelía Eydís Guðmundsdóttir er formaður þess og Daníel E. Arnarsson varaformaður. Samkvæmt frétt á vef Velferðarráðuneytisins hitti ráðherra þau í ráðuneytinu í dag. „Jafnréttisráð starfar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Það skal vera í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu og atvinnulífs.“ Jafnréttisráð gegnir einnig hlutverki við undirbúning jafnréttisþings sem haldið er á tveggja ára fresti. Á stuttum fundi í ráðuneytinu í dag var rætt um efni jafnréttisþings sem haldið verður 7. og 8. mars næstkomandi. Boðað hefur verið til fyrsta fundar nýskipaðs Jafnréttisráðs sem haldinn verður í lok þessarar viku. Jafnréttisráð er þannig skipað að auk formanns sem ráðherra skipar án tilnefninga eiga þar sæti tveir fulltrúar sem tilnefndir eru af samtökum launafólks, tveir fulltrúar tilnefndir sameiginlega af samtökum atvinnurekenda, tveir fulltrúar sem tilnefndir eru sameiginlega af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands, einn fulltrúi sem tilnefndur er sameiginlega af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum, einn fulltrúi sem tilnefndur er af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, einn fulltrúi sem tilnefndur er af Félagi um foreldrajafnrétti og einn fulltrúa sem tilnefndur er af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira