Ferðagleði landans stóreykur kortaveltu erlendis Daníel Freyr Birkisson skrifar 15. desember 2017 11:25 Efnahagsmoli er liður hjá Íslandsbanka þar sem fjallað er um fjármál. Vísir/Anton Brink
Mikill vöxtur er enn í kortaveltu Íslendinga og gefur hann til kynna að einkaneysla vaxi enn hratt. Sér í lagi er vöxturinn hraður á erlendri grundu, og er útlit fyrir að þjónustuafgangur verði með minna móti á síðasta fjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í liðnum „Efnahagsmoli“ sem Íslandsbanki stendur fyrir. Greinina skrifar Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur bankans. Vöxtur kortaveltu Íslendinga nam tæplega 12 prósentum í nóvember að raunvirði milli ára, samkvæmt tölum Seðlabankans. Sér í lagi var vöxturinn mikill í erlendri kortaveltu en einnig talsverður innanlands. Vöxtur erlendu kortaveltunnar nam 23 prósentum en innlendu 9 prósentum.Erlend netverslun og ferðagleði helstu þættir aukningar Aukning í utanlandsferðum Íslendinga veldur því að kortavelta utan landsteinanna vex margfalt hraðar en veltan innanlands. Erlend netverslun landsmanna spilar einnig stóran þátt. Hægst hefur á vexti erlendra korta hér á landi og er það í takt við hægari fjölgun ferðamanna hingað til lands. Það sem af er fjórða ársfjórðungi nemur raunvöxtur kortaveltu að jafnaði tæplega 13 prósent á milli ára. Bætt hefur í vaxtarhraðann á sama tíma og dregið hefur úr aukningu kaupmáttar launa. Bendir það til þess að einkaneysla vaxi enn hröðum skrefum þrátt fyrir hægari kaupmáttarvöxt, og að árið 2017 muni heimilin hugsanlega byrja að ganga á sparnað í einhverjum mæli.
Neytendur Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira