Gleði og sorgir Jógu Gnarr 8. desember 2017 15:15 Jón Gnarr segir að það hafi verið mikil lífsreynsla fyrir sig að skrifa bókina. MYND/ERNIR
KYNNING Jón Gnarr sá mikla sögu í skelfilegri lífsreynslu eiginkonu sinnar, Jógu. Hann þurfti þó að ganga lengi á eftir henni til að fá að skrásetja hana. Bókin Þúsund kossar hefur nú litið dagsins ljós og hefur fengið frábærar viðtökur. Jón segir að það hafi verið erfitt fyrir Jógu að fara í gegnum minningarnar frá þessum tíma. „Að horfast í augu við hluti sem hún hafði kosið að gleyma. Jóga lenti í alvarlegu bílslysi í New York árið 1981 sem breytti ekki aðeins lífi hennar heldur einnig framtíðarvonum. Á meðan hún tókst á við að ná bata eftir slysið þurfti hún að glíma við bandaríska dómskerfið sem er afar flókið og vandmeðfarið. Fyrst var barátta við undirrétt, síðan millidómstig og loks hæstarétt. Með þessu var Jóga að berjast fyrir réttindum sínum að fá slysabætur. Málið varð alltaf umfangsmeira og flóknara eftir því sem það fór lengra. Þetta voru mörg erfið spor fyrir tvítuga íslenska stúlku,“ segir Jón. „Erfið lífsreynsla, mikill einmanaleiki og umkomuleysi.“Peð meðal sterkra lögmannaBókin Þúsund kossar lýsir þessu ferli á persónulegan hátt þar sem blandast sektarkennd, skömm og glatað sakleysi. Á þessum tíma blasti framtíðin við Jógu og næst á dagskrá var að láta draum um leiklistarnám rætast. „Jóga slasaðist illa í þessu bílslysi og mun aldrei ná sér fullkomlega. Það setti sitt mark á líkamlegt og andlegt ástand hennar. Þetta er ótrúleg saga og mér hefur alltaf fundist að hana þyrfti að segja. Þetta ferli í Bandaríkjunum tók fimm ár. Hún sagði mér oft frá þessari lífsreynslu í hlutum, gjarnan þegar eitthvað rifjaðist upp fyrir henni, til dæmis þegar við heimsóttum New York. Þegar fólk verður fyrir alvarlegum áföllum skerðist oft minnið. Jóga þjáðist lengi af áfallastreituröskun sem var ekki einu sinni viðurkennd á þessum tíma. Í augum kerfisins voru það bara karlar sem höfðu barist í stríði sem urðu fyrir áföllum. Það er í rauninni magnað að vera einhvers konar peð í risastórum heimi bandarískra lögmanna.Bókin var skrifuð í Texas og gat stundum tekið á sambandiðFrægt dómsmálJón segir mjög margt hafa komið sér á óvart þegar hann settist við skriftir. „Ég lærði til dæmis mikið um eðli og áhrif áfalla. Hvernig þau setja mark sitt á þá sem fyrir þeim verða. Auk þess þurfti ég að hafa samband við dómskjalasöfn í Bandaríkjunum til að fá í hendur öll skjöl sem tilheyrðu málinu. Það var fyrst þá sem við uppgötvuðum hvað þetta var umfangsmikið og merkilegt mál. Það er þekkt hjá lögfræðingum sem fást við slysabætur og hefur skapaði fordæmisgildi. Málið snerist fyrst og fremst um rétt hennar á slysabótum sem okkur finnst sjálfsagður í dag en var dregin í efa á þessum tíma. Sagan fjallar sömuleiðis um áfall og síðan upprisu. Barátta ungrar konu að halda sambandinu við sjálfan sig þegar það var svo auðvelt að týna sér,“ útskýrir Jón.Las flókna lagabálkaAð fara yfir öll þessi dómsskjöl var gríðarlega mikil vinna fyrir hann og tók langan tíma. Jón hafði heldur ekki þekkingu á öllum þeim orðum sem notuð eru í lagabálkum og bandarísku dómskerfi. „Ég þurfti að gúgla nokkrum sinnum á hverri blaðsíðu. Við unnum bókina í Texas sem gerði mér auðveldara að nálgast málsskjölin. Þetta var sérstök reynsla fyrir mig og sömuleiðis átak fyrir hjónabandið. Stundum á miðri leið spurði ég sjálfan mig út í hvað ég væri eiginlega kominn? Það væri kannski hægt að gera aðra bók um reynslu mína af því að vinna þessa sögu,“ segir hann glettinn. „Í bókinni talar Jóga í gegnum mig sem er svolítið sérstakur ritstíll. Við höfum fengið frábær viðbrögð og ég er mjög ánægður núna að hafa farið út í þessa miklu vinnu.“
Lífið Menning Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Fleiri fréttir Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Sjá meira