Enn ekki steytt á neinum skerjum í viðræðunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. nóvember 2017 13:51 Bjarni, Katrín og Sigurður Ingi í Ráðherrabústaðnum í dag. vísir/eyþór
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, komu saman til fundar í formlegum stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 13 í dag. Góður gangur er í viðræðunum að sögn formannanna og sagði Katrín í samtali við Heimi Má Pétursson í hádegisfréttum Bylgjunnar að ekki hefði steytt á neinum skerjum ennþá en þó sé ekki búið að landa öllum málum. Síðar í dag munu formennirnir eiga fundi með aðilum almenna vinnumarkaðarins en þeir hittu aðila opinbera vinnumarkaðarins í gær. „Við munum halda áfram að eiga samtöl við aðila vinnumarkaðarins. Við munum sömuleiðis hitta fleiri aðila til að fara yfir einstaka þætti í okkar málefnavinnu þannig að ég á ekki von á því að það verði nein niðurstaða sem liggur fyrir í lok dags heldur höldum við bara áfram þeirri vinnu sem hefur verið ágætis gangur í,“ sagði Katrín í hádeginu. Aðspurð hvort hún haldi að viðræðurnar klárist í þessari viku eða haldi áfram fram í þá næstu sagði hún: „Við höfum sagt að við ættum að hafa nokkuð góða hugmynd um það í lok vikunnar hvort við teljum að við getum þessu náð saman. Þetta verður auðvitað ekki tilbúið þá og ef við teljum það þá er samt töluverð vinna eftir.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira