Óhreinsuðu skólpi sleppt í sjó við Faxaskjól næstu daga Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. nóvember 2017 14:12 Skólphreinsistöðin við Faxaskjól. Vísir/Vilhelm
Vegna viðhalds á skólpdælustöð við Faxaskjól verður óhreinsuðu skólpi sleppt í sjó við stöðina alla næstu viku eða dagana 20.-27. nóvember. Almenningur er því beðinn um að halda sig fjarri sjónum við Faxaskjól í vikunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veitum. Endurnýja á undirstöður sem skólpdælurnar hvíla á en þetta er í fyrsta skipti síðan dælustöðin var gangsett árið 1992 sem það er gert. Til þess að verkið gangi eins hratt fyrir sig og mögulegt er verður unnið á vöktum allan sólarhringinn. „Við minnum á að í gegnum fráveitukerfið fer allt það sem sturtað er niður í klósett sem og vatn frá sturtum, baði, vöskum, þvottavélum og öðrum heimilistækjum sem nota heitt eða kalt vatn,“ segir í tilkynningunni. „Þetta fer óhreinsað í sjó á meðan dælustöðin er óvirk, þ.m.t. rusl eins og eyrnapinnar, blautþurrkur, smokkar, tannþráður og dömubindi, sem eiga auðvitað aldrei að fara í klósettið heldur beint í almennt sorp.“ Þá er ekki mælst til þess að fólk sé í eða við sjóinn í nálægð við dælustöðina á meðan ástandið varir. Skilti verða sett upp við dælustöðina í aðvörunarskyni og þá verður einnig fylgst sérstaklega með fjörum í kringum stöðina. Send hefur verið tilkynning um viðhald stöðvarinnar til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem sér um vöktun á mengun í strandsjó.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Sjá meira