Vill að örorkubætur verði að lágmarki 390.000 krónur á mánuði Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 1. nóvember 2017 11:33 Þuríður Harpa Sigurðardóttir nýkjörinn formaður Öryrkjabandalagsins ræddi málefni öryrkja í Bítinu í dag. vísir/hanna „
Mér lýst vel á starfið sem slíkt og það sem framundan er en þetta er mikil barátta og við höfum farið svolítið halloka undanfarin ár og áratug og kjör okkar hafa versnað meira og meira. Við höfum orðið eftir,“ sagði Þuríður Harpa Sigurðardóttir nýkjörinn formaður Öryrkjabandalagsins í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í dag. „Það er heilmikið sem þarf að laga.“Sumir flokkar ekki með öryrkja á stefnuskráÞuríður Harpa sagði að öryrkjar væru talsvert mikið undir og þeirra lífeyrisgreiðslur hafi engan vegin verið í takt við launaþróun. Þegar talið barst að kosningaloforðum í kosningabaráttunni segir Þuríður Harpa: „Ég gat ekki séð mikið af loforðum gagnvart okkur öryrkjum nema náttúrulega Flokkur fólksins,“ og bendir á að flokkurinn sé stofnaður af fólki sem hafi skilning á þessum málum. Hún segir að margir flokkar hefðu mátt tala meira um breytingar í þágu öryrkja „Sumir voru bara hreinlega varla með okkur á stefnuskránni.“ Hún segir að það sé dæmigert fyrir öryrkja að vera með 200.000 til ráðstöfunar á mánuði. „Fólk er að velja á milli, hvort kaupir þú í matinn eða kaupir lyfin þín?“ Hún bendir þó á að ekki allir öryrkjar taki lífeyrisgreiðslur, eins og hún sjálf. „Þegar ég slasast og lamast þá er ég það heppin að ég get farið aftur til minnar vinnu, ég hef þá starfsorku og getu til þess að sinna mínu starfi. Ég þarf ekki að taka lífeyrisgreiðslur í dag.“ 390 þúsund að lágmarkiÞuríður Harpa segir margir hafi ekki fulla starfsorku og þurfi því á bótunum að halda. Af þeim þarf svo að borga fæði, húsnæði, ferðakostnað, lækniskostnað, lyf og fleira. En hver er þeirra krafa „Við höfum verið að tala fyrir því að við höfum 390.000 krónur á mánuði fyrr skatt, það sé eiginlega algjört lágmark að mínu mati, og okkar mati. Það er eiginlega eðlileg krafa miðað við það sem var einu sinni í gangi og hefði átt að reiknast upp.“ Nefnir Þuríður Harpa einnig að hækka mætti persónuafslátt og auka möguleika öryrkja til að ná sér í aðrar tekjur án þess að skerða bæturnar krónu á móti krónu. Skerðingarnar setji öryrkja í verri stöðu. „Þeir eru settir í þá gildru, að vera bara fastir í fátækragildru eiginlega. Þeir geta ekki farið á vinnumarkaðinn vegna þess að það borgar sig ekki fyrir þá. Þegar þú gerir það ekki þá ertu bara fastur í þessu að fá greiðslur frá Tryggingarstofnun og lífeyrissjóðunum.“Íslenskt þjóðfélag að framleiða öryrkjaÍ starfi sínu ætlar Þuríður Harpa að leggja áherslu á mannréttindi, velferð, mannúð og kjör lífeyrisþega. Hún er bjartsýn og vonar að örorkubæturnar verði hækkaðar. „Ég trúi því að stjórnvöld vilji í raun að allir sem búa á Íslandi lifi við mannsæmandi kjör.“ Hún segist ekki trúa því að fólk sé að stefna að því að verða öryrkjar til að misnota kerfið. „Hins vegar held ég að við sem samfélag og þjóðfélag þurfum að fara aðeins að skoða þessa þjóðfélagsgerð hérna hjá okkur. Ég held að við séum í rauninni að framleiða öryrkja með því að koma ekki til móts við fólk á þeim stigum sem það er að veikjast eða álagið að verða of mikið á fjölskyldur.“Viðtalið við Þuríði Hörpu má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrr neðan.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira