Árásarmaðurinn í Texas lést að lokinni eftirför Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. nóvember 2017 00:15 Lögreglan í Texas að störfum eftir enn eina fjöldaskotárásina í Bandaríkjunum. Vísir/AFP
Staðfest er að árásarmaðurinn í Texas sé látinn. Hann lést að lokinni eftirför. Óvíst er hvort hann hafi tekið eigið líf eða hvort hann hafi verið veginn. Hinn grunaði er sagður vera hinn tuttugu og sex ára gamli Devin Patrick Kelley. Þetta hefur CBS News heftir heimildarmönnum innan Alríkislögreglunnar. Maðurinn er grunaður um að hafa hafið skothríð á kirkjugesti í baptistakirkju í bænum Sutherland Springs í Texas með þeim afleiðingum að tuttugu og sex eru látnir og minnst tuttugu slasaðir. Lögregluyfirvöld í Texas ítreka tölur yfir fjölda látinna og slasaðra gætu breyst. Árásarmaðurinn kom inn í kirkjuna klukkan hálf tólf að staðartíma á meðan á messu stóð og hleypti af skotum. Dóttir prestsins við baptistakirkjuna var ein þeirra sem lét lífið í árásinni. Sherri Pomeroy, móðirin, sagði frá því að þau hjónin hefðu misst fjórtán ára dóttur sína og marga vini. Þau voru stödd í sitt hvoru fylkinu á meðan á árásinni stóð. Ken Paxton, saksóknari í Texas, segir að margir þættir séu enn á huldu um skotárásina. Um 400 manns búa í bænum Sutherland Springs sem er í um 48 kílómetra fjarlægð frá borginni San Antonio.Google Maps
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira