Stórþjófnaður úr ólæstri ferðatösku ferðalangs og verðmætum skartgripum stolið Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. október 2017 10:00 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning um stórþjófnað úr ferðatösku ferðalangs. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/GVA
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning um stórþjófnað úr ferðatösku ferðalangs. Þjófnaðurinn átti sér stað þegar viðkomandi var á leið til Bandaríkjanna. Verðmæti þess sem stolið var nam hátt á þriðja hundrað þúsund krónum samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Ferðamaðurinn saknaði einkum verðmætra skartgripa, snyrtivara og fleira. Nokkur bið hafði orðið á því að hópurinn sem viðkomandi hafði ferðast með fengi farangur sinn þegar komið var á áfangastað. Þegar hópurinn tók upp úr ferðatöskunum við komuna á hótelið sitt kom í ljós að búið var að opna þær sem voru ólæstar og stela ýmsu úr þeim.Sveðja fannst hjá grunuðum fíkniefnasala Lögreglan á Suðurnesjum fann umtalsvert magn af fíkniefnum í húsleit með aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra í vikunni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu leikur sterkur grunur á að sá sem dvaldi þar hafi stundað sölu fíkniefna. Karlmaður á þrítugsaldri dvaldi í íbúðinni í óþökk húseigenda. Þegar lögreglu bar á vettvang var ljóst að mikil fíkniefnaneysla hafði átt sér stað í íbúðinni. Í húsleitinni fundust meint amfetamín, e–töflur, kannabisefni, sterar og fleiri efni víðs vegar um íbúðina ásamt vog og sölupokum. Í íbúðinni fundust einnig Taser rafstuðtæki og sveðja. Sérsveitin var fengin til aðstoðar við húsleitina þar sem grunur lék á að maðurinn væri vopnaður. Hann var handtekinn á staðnum ásamt tveimur öðrum sem voru gestkomandi í íbúðinni en lögregla fann einnig fíkniefni á þeim.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira